Ţelamerkurskóli í Hörgárbyggđ

http://www.thelamork.is/

Ţelamerkurskóli er heildstćđur grunnskóli ađ Laugalandi í Hörgárdal. Nemendur skólans koma úr Arnarneshreppi og Hörgárbyggđ og á skólaárinu 2008-2009 eru nemendur 94. Skólinn leggur áherslu á útiveru og hreyfingu. Útiskóli hefur veriđ starfrćktur viđ skólann í átta ár og einnig eru í stundaskrám Ţelamerkurskóla fleiri hreyfistundir en viđmiđunarstundaskrá gerir ráđ fyrir.

Efni

Ánægjulega margir á fyrsta kóræfingunni

03.09.2010 14:04 - 38 lestrar

Í dag var fyrsta kóræfing skólakórs Þelamerkurskóla. Á hana gátu allir mætt sem höfðu áhuga á því að stunda kóræfingar í vetur.

Það voru 20 nemendur úr 1. - 6. bekk sem mættu á æfinguna. Nemendur gerðu nokkrar raddæfingar og leiki ásamt því að æfa ný lög. Eitt þeirra var meira að segja á ensku og frammistaða nemenda var eins og þeir hefðu aldrei gert annað en að syngja á útlensku.  

Stjórnandi kórsins er tónmenntakennari skólans, Sigríður Hulda Arnardóttir.


Kór í Þelamerkurskóla

02.09.2010 10:14 - 44 lestrar

Í ár gefst nemendum 2. - 6. bekkjar tækifæri til að taka þátt í kórastarfi. Kórstjóri skólakórs Þelamerkurskóla verður nýráðinn tónmenntakennari skólans, Sigríður Hulda Arnardóttir.

Kórinn æfir á föstudögum kl. 13:00 til 14:20. Það er á sama tíma og nemendum boðið er uppá hreyfistundir í íþróttahúsinu og sundlauginni. Nemendur geta því valið á milli þess að vera í hreyfistund eða kórastarfi á þessum tíma.

Föstudaginn 3. september geta allir þeir sem hafa áhuga á kórastarfinu prófað að koma á kóræfingu en föstudaginn 10. september verða nemendur að hafa gert upp hug sinn.

Bréf um kórastarfið fór heim með nemendum í gær. Það er hægt að lesa með því að smella hér.


Samvera á sal

02.09.2010 09:08 - 35 lestrar

Með ráðningu tónmenntakennara við skólann gefst tækifæri til að setja samveru á sal sem fastan lið í stundaskrá nemenda. Frá og með skólabyrjun í ár verður 1. - 6. bekkur saman á sal frá kl. 8:30 til kl. 8:50 á hverjum miðvikudegi.

Hugmyndin er að hver námshópur sjái um einn stuttan dagskrárlið að eigin vali og síðan syngur hópurinn saman eitt lag eða tvö áður en haldið er til annarra verka dagsins.

Fyrsta samvera á sal var í gær og þá sungu nemendur og kennarar þeirra saman nokkur lög. Það vakti athygli nemenda að nú hafa verið keyptir nýir stólar í salinn og þótti nemendum þægilegt að sitja á þeim. Allir eru velkomnir á þessar samverustundir.


« fyrri síđa | nćsta síđa »

Upp aftur