Efni
Fréttir
Jólaföndur
24.11.2011 10:25 - 1470 lestrarMeð bestu aðventukveðjum og von um að sem flestir sjái sér fært að koma og eiga notalega samveru með börnum sínum í skólanum.
Ingileif og Unnar
Útivistardagur vorannar.
17.03.2011 14:50 - 2858 lestrarEf veðurguðirnir verða okkur hliðhollir ætlum við að vera með útivistardag í skólanum miðvikudaginn 23. mars. Hægt er að velja um að fara skíði / bretti /gönguskíði / snjóþotum/tveimur jafnfljótum í Hlíðarfjall. Við verðum með söng á sal í fyrsta tíma og nemendur fá síðan morgunmat. Lagt verður af stað frá skólanum kl. 9:40.
Nemendur borða nesti frá skólanum í hádeginu milli kl. 11:30 og 12:00.
Heimferð frá Hlíðarfjalli verður kl. 14:00 (stundvíslega) og nemendur komnir heim á venjulegum tíma. Boðið verður upp á skíðakennslu. Bæði svig- og gönguskíði.
Þeir sem ætla að vera eftir í fjallinu þurfa að koma með miða um það að heiman. Þeir nemendur sem þurfa að leigja sér skíði eða bretti þurfa sjálfir að greiða fyrir leiguna, en ekki lyftugjald í fjallið.
Fyrir þá sem þurfa að leigja skíði/bretti:
Leigan á skíðum og brettum í Hlíðarfjalli er 1.700 kr. -3.000 kr. pr. mann. (fer eftir stærð). Síminn er 462-2280. Einnig er hægt að leigja skíði og bretti hjá Vidda í Skíðaþjónustunni. Síminn þar er 462-1713. Leigan þar er 1.500 fyrir skíði og bretti.
Ef þú ætlar að leigja skíði eða bretti hjá Vidda er best að ganga frá því deginum áður.
Þessar lyftur verða opnar.
Töfrateppi (fyrir algjöra byrjendur)
Auður (sem er toglyfta frá stólalyftu og að hóteli)
Hólabraut (toglyfta)
Fjarkinn (stólalyfta)
Ef veður verður leiðinlegt þennan dag og hætt verður við ferðina verður að sjálfsögðu kennsla og nemendur koma þá með námsbækur
Kl. 7.00 um morguninn verður tilkynnt á heimasíðu skólans hvort farið verður í fjallið eða ekki
Dagskrá skólans í mars
02.03.2011 09:03 - 2895 lestrar« fyrri síđa | nćsta síđa »
