Skólahverfi Þelamerkurskóla er mjög víðfermt og aðstæður misjafnar. Foreldrar þurfa undir öllum kringumstæðum að meta það hvort barn eigi erindi í skólann jafnvel þótt enginn tilkynning hafi borist um niðurfellingu skólahalds. Foreldrar tilkynna skólanum og skólabílstjóra um forföll vegna veðurs og lítur skólinn á slík tilvik sem eðlileg forföll. Í allri tvísýnu skal öryggi barnsins njóta vafans.
Skólaakstur:
Ef útlit er tvísýnt og veður vond taka skólayfirvöld í samráði við bílstjóra og íbúa á jaðarsvæðum ákvörðun um að skólahald falli niður vegna veðurs og eða ófærðar. Til viðbótar við skólabílstjóra er hringt í Jón Þór Brynjarsson Hjalteyri í síma 462-5704 og 893 6104 og Gunnar í Búðarnesi í síma 462 6892. Stefnt skal að því að ákvörðun um niðurfellingu skólaaksturs liggi fyrir kl. 7.00 á morgnana.
Ef skólahaldi er aflýst fer eftirfarandi ferli í gang.
Upplýsingagjöf:
1. Tilkynningu um niðurfellingu skólaaksturs er sett á heimasíðu skólans http://thelamork.is. Þetta gerir skólastjóri eða aðstoðarskólastjóri ekki seinna en kl. 7.00.
2. Sendur er tölvupóstur á Ríkisútvarpið ( ruv.is) og Bylgjuna (bylgjan.is). Þetta gerir
skólastjóri eða aðstoðarskólastjóri.
Ef senda þarf nemendur heim á skólatíma.
Ef upp koma þær aðstæður að senda þarf nemendur heim á skólatíma fer eftirfarandi ferli í gang.
1. Frétt um að skólahaldi sé frestað er sett á vef skólans.
2. Skólastjórnendur skipuleggja úthringingu til foreldra. Miðað er við að það sé haft samband við foreldra/forráðamenn nemenda í 1. - 6. bekk. Eldri nemendur fá að hringja heim.
3. Hringingar heim eru til þess að tryggja að einhver fullorðinn taki á móti nemendum úr skólabílnum.
Í síðustu viku vorum við með þemavinnu frá mánudegi til föstudags. Þemað var í fimmta til sjöunda tíma. Boðið var uppá fimm hópa og tengdust viðfangsefni þeirra markmiðum heilsueflandi skóla. Þessir hópar voru:
Hofi í Hörgárdal.
