Ţelamerkurskóli í Hörgársveit

http://www.thelamork.is/

Ţelamerkurskóli er heildstćđur grunnskóli ađ Laugalandi í Hörgárdal. Nemendur skólans koma úr Arnarneshreppi og Hörgárbyggđ og á skólaárinu 2008-2009 eru nemendur 94. Skólinn leggur áherslu á útiveru og hreyfingu. Útiskóli hefur veriđ starfrćktur viđ skólann í átta ár og einnig eru í stundaskrám Ţelamerkurskóla fleiri hreyfistundir en viđmiđunarstundaskrá gerir ráđ fyrir.

Efni

Dagur Davíðs Stefánssonar

20.01.2012 15:03 - 200 lestrar

Davíð Stefánsson fæddist í Fagraskógi þann 21. janúar árið 1895. Foreldrar hans voru Stefán Baldvin Stefánsson bóndi og síðar alþingismaður og Ragnheiður Davíðsdóttir frá davidstefans_120Hofi í Hörgárdal.

Davíð lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskólanum á Akureyri árið 1911. Á árunum 1915-1916 dvaldist hann í Kaupmannahöfn og hófst skáldferill hans þar. Síðar hóf hann nám við Menntaskólann í Reykjavík og lauk þaðan stúdentsprófi árið 1919, en það ár kom fyrsta ljóðabók hans út, hún ber heitið Svartar fjaðrir.

Davíð dvaldist öðru hvoru erlendis, m.a. í nokkra mánuði á Ítalíu árið 1920 og svo í Noregi 1923. Árið 1925 tók Davíð við föstu starfi sem bókavörður á Amtsbókasafninu á Akureyri, hann lét formlega af störfum sem bókavörður árið 1951.

Davíð Stefánsson frá Fagraskógi lést á Akureyri þann 1. mars árið 1964. Hann er jarðaður á Möðruvöllum í Hörgárdal en þar hvíla einnig foreldrar hans og önnur ættmenni.

Í tilefni dagsins sáu nemendur 7. - 8. bekkjar um örlitla dagskrá í matsal skólans. Karlalkórinn Þrymur söng tvö lög og skólahljómsveitin spilaði undir með miklum myndarbrag.

Upp aftur

Vinstri hliđ

Leturstćrđir

Upp aftur

Upplýsingar

Heimilisfang: Laugalandi, 601 Akureyri

Kennitala sveitarfélags: 510101-3830

Símanúmer:

Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda:

460-1773 

Skólastjóri 460-1770
Aðst.skólastj. 460-1774
Kennarastofa 460-1772

Símanúmer bílstjóra

Viðbragðsáætlun vegna óveðurs eða ófærðar

Heimasíða Hörgársveitar

Heimasíða Tónlistarskóla Eyjafjarðar

Senda póst

Upp aftur