Á kennarafundi í gær var fundaáætlun starfsmanna á vorönn 2012 kynnt. Í henni kemur fram að mest af fundatíma kennara á vorönn verður notaður til að kynningar á nýrri aðalnámskrá og til að kynna sér nýjar leiðir í mati á námi nemenda.
Í febrúar er einnig áformuð námsferð út með Eyjafirðinum, til Dalvíkur og Siglufjarðar. Þar munu kennarar kynna sér þróunarverkefni grunnskólanna þar um nýjar leiðir í námsmati.
Í mars kynna kennarar hver fyrir öðrum hvernig þeir hafa komið fyrir virkni og þátttöku nemenda í verkefnum sem þeim hafa verið falin. Það er hluti af þróunarverkefni skólans sem miðast við að auka áhrif nemenda á eigið nám og umhverfi.
Apríl og maí munu einkennast af undirbúningi fyrir umhverfisviku og útiskóla vordaganna.
Hér er hægt að nálgast fundaáætlun starfsmanna í heild sinni.
