Í dag heimsóttu okkur þrír fulltrúar frá Landvernd til að gera úttekt á skólanum okkar og meta hvort við værum komin það langt í vinnu okkar í umhverfismálum að við fengjum að flagga Grænfánanum.
Við byrjuðum úttektina á að fara yfir umhverfisskýrsluna og gátlista sem við höfðum fyllt út í vetur og sent Landvernd í mars sl. og fjölluðum jafnframt um störf okkar og helstu áherslur. Síðan hitti Landverndarfólk umhverfisnefnd skólans og átti með henni gott spjall. Að lokum var farið í vettvangsferð um skólann, flokkunarstöðvar skoðaðar, kíkt í heimsókn í bekki og rætt við nemendur og loks farið á útiskólasvæðið okkar góða, sem er í takt við markmið Grænfánaverkefnisins.
Fljótlega eftir úttektina fengum við tilkynningu frá Landvernd að við fengjum Grænfánann! Við stefnum að því að flagga honum nú í skólalok.
Til hamingju nemendur og starfsfólk Þelamerkurskóla.
RE: Grænfánanum flaggað
Unnar Eiríksson - 21.05.2010 13:49 - unnare[hjá]thelamork.isRE: Grænfánanum flaggað
Hanna Rósa Sveinsdóttir - 23.05.2010 23:21 - hanna[hjá]akmus.isRE: Grænfánanum flaggað
Jón Þór Benediktsson - 26.05.2010 11:11 - jontorben[hjá]internet.is - www.ttv.isRE: Grænfánanum flaggað
Ingileif - 25.06.2010 11:04