Það er okkur sönn ánægja að segja frá því að hér í Þelamerkurskóla höfum við ákveðið að taka Jokob Einar hjólagarpa okkur til fyrirmyndar. Það ætlum við að gera með því að hlaupa gegn einelti í Norræna skólahlaupinu sem verður hjá okkur í lok september.
Þeð fer vel á því að nemendur og starfsfólk Þelamerkurskóla leggi sitt af mörkum gegn einelti. Í fyrsta lagi vinnum við að því að innleiða áætlun Olweusar gegn einelti, í öðru lagi leggjum við áherslu á útivist og hreyfingu í skólastarfinu og í þriðja lagi er samkennd eitt af einkennisorðum skólans.
Fyrirkomulag hlaupsins og söfnunar áheita á nemendur verður með svipuðu fyrirkomulagi og þegar við tókum þátt í Unicef-hreyfingunni á sínum tíma. En í þetta sinn eru það samtökin Liðsmenn Jeríkó sem njóta áheitanna sem nemendur safna.
