Ţelamerkurskóli í Hörgársveit

http://www.thelamork.is/

Ţelamerkurskóli er heildstćđur grunnskóli ađ Laugalandi í Hörgárdal. Nemendur skólans koma úr Arnarneshreppi og Hörgárbyggđ og á skólaárinu 2008-2009 eru nemendur 94. Skólinn leggur áherslu á útiveru og hreyfingu. Útiskóli hefur veriđ starfrćktur viđ skólann í átta ár og einnig eru í stundaskrám Ţelamerkurskóla fleiri hreyfistundir en viđmiđunarstundaskrá gerir ráđ fyrir.

Efni

Íbúaþing um skólastefnu

11.01.2012 11:51 - 65 lestrar

Stýrihópur um mótun skólastefnu Hörgársveitar boðar til íbúaþings laugardaginn 14. janúar kl. 10-14. Þingið verður haldið í Þelamerkurskóla. Þar fer fram fyrsta hugamyndavinna vegna skólastefnu Hörgársveitar.

Skólinn opnar kl. 9:45 og þá verður hægt að fá sér kaffisopa og kleinu áður en þingið hefst formlega. Þingið byrjar á erindi Gunnars Gíslasonar fræðslustjóra Akureyrarbæjar Hvað er skólastefna sveitarfélags og hvaða áherslur setja nýjar aðalnámskrár fyrir skólastarf framtíðarinnar?

Að erindi Gunnars loknu verða hópumræður þar sem fundarmenn svara þremur spurningum:

  1. Hvað er gott skólastarf?
  2. Hver eru gæði, sérstaða og ímynd skólanna í Hörgársveit?
  3. Hvernig bætum við skólana í Hörgársveit?

Gert verður hlé á umræðum milli kl. 12:00 og 12:30 þá geta fundarmenn gætt sér á kjötsúpu í matsal skólans. En það er Kvenfélag Hörgdæla sem sér um veitingar þingsins. Vetingarnar eru fundarmönnum að kostnaðarlausu.

Kl. 13:20 er gert ráð fyrir að hóparnir kynni umræður sínar og niðurstöður þeirra.

Allir íbúar Hörgársveitar eru hvattir til að koma á þingið og að hafa áhrif á mótun skólastefnu sveitarfélagsins.

Upp aftur

Vinstri hliđ

Leturstćrđir

Upp aftur

Upplýsingar

Heimilisfang: Laugalandi, 601 Akureyri

Kennitala sveitarfélags: 510101-3830

Símanúmer:

Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda:

460-1773 

Skólastjóri 460-1770
Aðst.skólastj. 460-1774
Kennarastofa 460-1772

Símanúmer bílstjóra

Viðbragðsáætlun vegna óveðurs eða ófærðar

Heimasíða Hörgársveitar

Heimasíða Tónlistarskóla Eyjafjarðar

Senda póst

Upp aftur