Ţelamerkurskóli í Hörgárbyggđ

http://www.thelamork.is/

Ţelamerkurskóli er heildstćđur grunnskóli ađ Laugalandi í Hörgárdal. Nemendur skólans koma úr Arnarneshreppi og Hörgárbyggđ og á skólaárinu 2008-2009 eru nemendur 94. Skólinn leggur áherslu á útiveru og hreyfingu. Útiskóli hefur veriđ starfrćktur viđ skólann í átta ár og einnig eru í stundaskrám Ţelamerkurskóla fleiri hreyfistundir en viđmiđunarstundaskrá gerir ráđ fyrir.

Efni

Næstu dagar

26.05.2010 16:33 - 414 lestrar

Á morgun, fimmtudagin 27. maí, verða nemendur skólans á faraldsfæti. Nemendur 1.-6. bekkjar fara til Hjalteyrar. Þar er áformað að dorga á bryggjunni, smíða báta og fleyta þeim á tjörninni, sulla í tjörninni og veiða í henni bjöllur, síli og annað sem þar finnst. Einnig á að leika sér við sandkastalagerð í fjörunni. Grillið verður með í för; grillaðar verða pylsur og einnig sykurpúðar.

Lagt verður af stað klukkan 9:00 eftir að nemendur hafa fengið sér morgunmat og heimferð frá Hjalteyri er áætluð kl. 14:00. Því geta foreldrar reiknað með nemendum heim á sama tíma og venjulega.

Nemendur 7.-10. bekkjar fara í Mývatnssveit. Þar ætla þeir að skoða Dimmuborgir og Kröflu. Nemendur verða komnir heim fyrir venjulega brottför.

Föstudaginn 28. maí er vorhátíð skólans. Þá koma nemendur á venjulegum tíma í skólann og verða með umsjónarkennara í fyrsta tíma. Morgunmatur er á sama tíma og venjulega, kl. 9:10 og eftir morgunmat, kl. 9:30 verður haldið niður í íþróttahús og þar hefst skipulögð dagskrá sem varir í um það bil klukkustund. Síðan verður farið í sund. Nemendur eru minntir á að taka með sér sundfötin.

Að sundinu loknu, kl. 11:30 verður haldið upp að fánastöng skólans er þar verður Grænfáninn dreginn að húni við hátíðlega athöfn. Að lokum verður boðið uppá grillaða hamborgara og leiki uppi á skólalóð.

Reiknað er með að dagskránni sé lokið kl. 13:30.

Mánudaginn 31. maí klukkan 14:00 verður skólanum slitið í Hlíðarbæ.

 

Upp aftur