Með ráðningu tónmenntakennara við skólann gefst tækifæri til að setja samveru á sal sem fastan lið í stundaskrá nemenda. Frá og með skólabyrjun í ár verður 1. - 6. bekkur saman á sal frá kl. 8:30 til kl. 8:50 á hverjum miðvikudegi.
Hugmyndin er að hver námshópur sjái um einn stuttan dagskrárlið að eigin vali og síðan syngur hópurinn saman eitt lag eða tvö áður en haldið er til annarra verka dagsins.
Fyrsta samvera á sal var í gær og þá sungu nemendur og kennarar þeirra saman nokkur lög. Það vakti athygli nemenda að nú hafa verið keyptir nýir stólar í salinn og þótti nemendum þægilegt að sitja á þeim. Allir eru velkomnir á þessar samverustundir.
