Í fréttatíma sjónvarpsins í gærkvöldi var sagt frá listsköpunarnámskeiði elstu nemenda skólans. Námskeiðið var í umsjón Aðalheiðar Eysteinsdóttur listakonu. Nemendur notuðu rusl sem þeir fundu hér í skólanum og líka heima hjá sér og gerðu úr því lágmyndir af sjálfum sér.
Fréttamönnum RÚV á Akureyri þóttu þetta áhugavert verkefni og komu í gær til að mynda nemendur og verk þeirra. Einnig voru tekin viðtöl við nokkra þeirra. Á þessari slóð er hægt að skoða fréttina í heild sinni.
