Ţelamerkurskóli í Hörgárbyggđ

http://www.thelamork.is/

Ţelamerkurskóli er heildstćđur grunnskóli ađ Laugalandi í Hörgárdal. Nemendur skólans koma úr Arnarneshreppi og Hörgárbyggđ og á skólaárinu 2008-2009 eru nemendur 94. Skólinn leggur áherslu á útiveru og hreyfingu. Útiskóli hefur veriđ starfrćktur viđ skólann í átta ár og einnig eru í stundaskrám Ţelamerkurskóla fleiri hreyfistundir en viđmiđunarstundaskrá gerir ráđ fyrir.

Efni

Smiðjur - útivinna - útiskóli

18.05.2010 13:09 - 460 lestrar

Síðustu þrjá smiðjutíma hefur 1. - 7. bekkur verið við vinnu á útiskólasvæðinu okkar. Húsin sem við byrjuðum á síðasta haust fóru illa í vetur og nokkur þeirra voru alveg ónýt. Við fórum því í það að laga þau og gera önnur í stað þeirra sem eyðilögðust. Eins utiskoli_18.5.2010_019_400og alltaf vorum við ótrúlega heppinn með veðrið og krakkarnir voru langflest mjög dugleg. Í síðasta smiðjutímanum í morgun grilluðum við sykurpúða og krakkarnir léku sér í leiktækunum. Í smiðjutímunum í vetur smíðuðum við meðal annars fuglahús og gerðum skilti með nöfnum húsanna og má sjá myndir af þeim í myndasíðunni.  Foreldrar ættu að nota tækifærið þegar þau koma í skólann eða í íþróttahúsið að skoða hvað börnin eru búinn að afreka mikið á stuttum tíma og sjá hvað Mörkin okkar er orðið skemmtilegt útisvæði. Myndir frá vinnunni í morgun er hægt að skoða hér.

Upp aftur