Í dag, þriðjudaginn 12. janúar byrja smiðjur vorannar. Á þessari önn verða bara 1. - 7. bekkur í smiðjum en valfög unglingadeildarinnar verða á þeim tíma sem áður hafa verið smiðjutímar þeirra.
Nú verða smiðjurnar fimm í stað fjögurra fyrir áramót:
Útgáfusmiðja hjá Berglindi: Í þessari smiðju er ætlunin að gefa út blað. Hver smiðjuhópur útbýr eitt blað í sameiningu. Viðfangsefnin eru margvísleg, myndasögur, ljóð, smásögur, viðtöl og uppskriftir. Unnið verður bæði með tölvur og myndavélar auk þess sem farið verður í eldhúsið til að útbúa þær uppskriftir sem birtast í blaðinu.
Fuglasmiðja með Unnari: Markmiðið með smiðjunni er að kynnast helstu íslensku skógarfuglunum og finna leiðir til að laða þá að útiskólasvæðinu okkar. Það verður til dæmis gert með því að smíða fuglafæðubox og fuglahús sem verða sett upp í Mörkinni.
Hugmyndasmiðja með Gústav: Frá hugmynd til verks. Kennslan fer fram í myndmenntastofunni undir handleiðslu Gústavs Bollasonar myndlistarmanns.
Útismiðja með Huldu: Í útismiðjunni verður haldið áfram að vinna á útiskólasvæðinu. Í smiðjunni merkja hóparnir húsin sem smíðuð voru fyrir áramót og útbúa ýmislegt inn í húsin svo sem luktir og önnur áhöld. Kennslan fer fram bæði úti og inni.
Buslsmiðja með Ingu: Í þessari smiðju nýtum við okkar frábæru aðstöðu í Jónasarlaug. Þá verður buslað og leikið í lauginni ásamt því að þeir sem vilja sérstakar leiðbeiningar í sundi fá þær hjá Ingu.
Hér er yfirlit yfir smiðjurnar og hér eru hópaskiptingarnar.
