Föstudaginn
2. desember frá kl. 14:30-17:00 verður föndrað fyrir jólin í ÞelamerkurskólaÍ fyrra prófuðum við í fyrsta skiptið nýja tímasetningu á jólaföndrinu og mæltist hún vel fyrir. Því verður föndrað fyrir jólin kl. 14:30-17:00 þann 2. desember í Þelamekurskóla. Foreldrar og aðrir velunnarar skólans geta komið þegar þeim hentar á tímabilinu 14:30-17:00. Föndurdagurinn er hugsaður sem opinn dagur í skólanum þar sem foreldrum gefst kostur á því að koma í skólann og eiga notalega og umfram allt jólalega stund með börnum sínum, öðrum foreldrum og starfsfólki skólans.Jólaföndrið hefst kl. 14:30 með því að við söfnumst saman niðri í tónmenntastofu (fyrrum myndmenntastofa). Þar verður endursýnt leikritið, Karlakórinn Þrymur. Leikendur eru drengirnir í 4., 5. og 6. bekk og leikstjórinn er Sigga Hulda tónmenntakennari skólans. Leikritið var frumsýnt í söng á sal þann 16. nóv. og vakti mikla lukku. Að því loknu syngjum við saman tvö jólalög og svo verður farið að föndra. Eins og í fyrra verður föndrað á fimm stöðvum þennan dag; í smíðastofunni, í heimilisfræðistofunni og þremur skólastofum. Stjórn foreldrafélagsins hefur formlega dregið sig útúr jólaföndrinu en allir þeir sem vilja aðstoða okkur á sjálfan föndurdaginn geta verið í sambandi við okkur undirrituð. Eins og fyrr er allt föndrið á hóflegu verði. Í upphafi föndursins fá nemendur skráningablað þar sem þeir skrá það sem þeir föndra og í lok dags verður blaðið notað til að gera upp efniskostnaðinn. Kynningu á föndrinu og verði þess verður hægt að skoða á myndasíðu skólans eftir að skóla lýkur fimmtudaginn 1. desember. Frá klukkan 15:00 er hægt að kaupa heitt kakó með rjóma, vöfflur og smákökur í mötuneytinu. Sjálfboðaliðar úr hópi nemenda í 7. – 10. bekk sjá um þessa sölu ásamt starfsfólki mötuneytis. Allur ágóði af kakósölunni rennur til uppbyggingar á félagsaðstöðu nemenda. Fullorðnir og börn á grunnskólaaldri greiða 350 kr. fyrir kakó og meðlæti. Frítt er fyrir börn á leikskólaaldri. Frá klukkan 15:15 verða sjálfboðaliðar úr röðum 7.-10. bekkjar líka með barnagæslu (4 ára til 9 ára) (kubbar, spil og bækur) á bókasafninu og ganginum þar fyrir framan.
Þennan dag færist heimakstur nemenda til klukkan 17:00.
Með bestu aðventukveðjum og von um að sem flestir sjái sér fært að koma og eiga notalega samveru með börnum sínum í skólanum.
Ingileif og Unnar