Þrettándabrenna

Þrettándabrenna Ungmennafélagsins Smárans verður laugardaginn 7. janúar í malarkrúsunum norðan við Laugaland. Kveikt verður í brennunni kl. 20.00 og okkur hefur verið tjáð að þarna munu púkar fara á stjá og hrella fólk. Eftir brennuna verður BINGÓ á vegum Smárans og kaffihlaðborð í Þelamerkurskóla. Allur ágóði af kaffisölunni rennur í fjáröflun vegna Reykjaferðar nemenda.