Tónleikarnar tókust afar vel

Sameinaður kór nemenda 1.-6. bekkjar
Sameinaður kór nemenda 1.-6. bekkjar

Kór yngri nemenda söng lög úr Pílu Pínu, kór eldri nemenda söng syrpu Júróvisjónlaga. Að lokum sungu kórarnir saman tvö vorlög. Allir söngfuglarnir stóðu sig vel og var það mál gesta að sjaldan hafi hljómað jafn fagur söngur í Hlíðarbæ. 

Fyrir þá sem misstu af tónleikunum er hægt að horfa á upptöku af tónleikunum með því að smella hérna

Það var Páll Jóhannesson sem tók tónleikana upp fyrir okkur og tók líka myndina sem fylgir þessari frétt.