Vetrarfærð

Kannski ekki alveg svona slæmt en mokstur samt
Kannski ekki alveg svona slæmt en mokstur samt

Þegar þetta er ritað er mokstri lokið niðri á Skottinu, uppi við Hraukbæ og á Möðruvallaveginum og að sjálfsögðu á þjóðveginum og veginum út á Dalvík. Næst mokar Vegagerðin dalinn. 

Í dag er stöðvadagur og við reynum að koma jólaljósunum fyrir neðan við skóginn. Á stöðvadeginum geta nemendur allan daginn valið sér að vinna að þeim verkefnum sem þeir velja sér sjálfir. Margar stöðvar verða í boði í hverri lotu.