Vinaliðarnir bjóða uppá leiki í öllum frímínútum á mánudögum, þriðjudögum, miðvikudögum og föstudögum. Það er auðvelt að þekkja þá sem stýra leikjunum því þeir eru í merktum vestum. Leikjaskipulagið hangir alltaf uppi í forstofunni.
Nemendur hafa tekið Vinaliðaleikjum vikunnar afar vel og í dag voru um það bil 30 nemendur sem tóku þátt í leikjunum.