Skólaárinu 2009-2010 var slitið mánudaginn 31. maí sl. Skólaslitin fóru fram í Hlíðarbæ og þar fengu nemendur vitnisburði vetrarins, 10. bekkur var brautskráður og verðandi fyrsti bekkur var boðinn velkominn.
Í þessu albúmi eru myndir frá slitunum.
Skólaárinu 2009-2010 var slitið mánudaginn 31. maí sl. Skólaslitin fóru fram í Hlíðarbæ og þar fengu nemendur vitnisburði vetrarins, 10. bekkur var brautskráður og verðandi fyrsti bekkur var boðinn velkominn.
Í þessu albúmi eru myndir frá slitunum.
Á vorhátíð skólans komu fulltrúar Landverndar og afhentu skólanum Grænfánann. Í vetur hefur skólinn unnið að því að geta flaggað fánanum í fyrsta skiptið. Megináhersla fyrsta vetrarins var að ná tökum á úrgangi skólans með því að flokka hann, nýta betur og draga úr honum á allan þann hátt sem mögulegt er. Næsti áfangi er að beina athyglinni að orkunýtingu skólans.
Föstudaginn 28. maí var haldin vorhátíð skólans. Dagskráin hófst samkvæmt venju niðri í íþróttasal þar sem spilaður var blindrabolti. Þar öttu kappi nemendur úr brautskráningarárgangi skólans og nokkrir kennarar. Og að venju báru nemendur sigur úr býtum.
Síðan voru mynduð tvö lið, annað úr brautskráningarárganginum og hitt úr foreldurm og kennurum. Liðin kepptu svo fjölbreyttu boðhlaupi. Síðan var verðlaunaafhending fyrir besta árangur í Þelamerkurleikunum, blöðruleikurinn og svo var farið í sund.
Eftir sundið var haldið að fánastöng skólans þar sem fulltrúar Landverndar afhentu skólanum Grænfánann. Að lokum söfnuðust allir saman fyrir framan aðalinngang skólans þar sem hægt var að fá grillaða hamborgara og gos ásamt því að blása sápukúlur, fá andlitsmálningu, fara vatnsleiki, ganga á stultum og margt fleira.
Fimmtudaginn 27. maí fóru nemendur 1. - 6. bekkjar í vorferð að Hjalteyri. Þar gátu nemendur búið til sandkastala, veitt á bryggjunni, fleytt bátum sem þeir höfðu smíðað í skólanum og reynt að veiða síli í vatninu.
Þennan dag var frekar kalt á Hjalteyri en krakkarnir létu það ekki á sig fá heldur störfuðu að miklum móð að verkefnum sínum. Það sést vel á myndunum í þessu albúmi.
Fimmtudaginn 27. maí fóru nemendur skólans í vorferðir. Nemendur 7. - 10. bekkjar héldu í Mývatnssveit þar sem þeir stoppuðu við Goðafoss, skoðuðu Dimmuborgir, Námaskarð og Kröflu.
Í þessu albúmi eru myndir sem teknar voru í ferð eldri nemenda.
Þann 26. maí var umhverfisdagur í skólanum. Þá var nemendum skipt í hópa og þeir fóru á milli stöðva til að vinna mismunandi verkefni og líka til að leika sér utandyra. Stöðvarnar voru gróðursetningarstöð, handverksstöð, leikjastöð og umhverfisstöð. En á þeirri stöð fræddust nemendur um grænfánaverkefni skólans og umhverfssáttmála hans. Þeir undirritðu sáttmálann með því að búa til laufblað úr efnivið sem að öllu jöfnu fer í sorpið. Laufblaðið var svo hengt upp á "umhverfistréð" í anddyri skólans.
Meðfylgjandi myndir eru frá þessum degi.
Á dögunum buðu nemendur 3. - 5. bekkjar foreldrum sínum og öðrum velunnurum til samveru í skólanum. Þá léku nemendur stutta leikþætti með bröndurum, sýndu galdra og dans ásamt því að syngja og stjórna spurningakeppni.
Að samverunni lokinni var boðið upp á veitingar í kennslustofu nemenda.
Þriðjudaginn 25. maí voru Þelamerkurleikarnir haldnir í annað sinn. Á leikunum er keppt í 9 greinum og fá allir nemendur að spreyta sig í hverri grein.
Greinarnar eru: stinger (kröfubolti), hreystigreip, reiptog og aflprófun, 60 m spretthlaupi, boltakasti, langstökki, stígvélakasti, Olsen olsen og skák.
Veitt eru verðlaun fyrir tvö efstu sætin í fjórum aldursflokkum og hvoru kyni.
Að þessu sinni verður verðlaunaafhendingin á síðasta skóladegi en tilkynning úrslita var á sal eftir leikana.
Vorönninni var skipti í þrjú tímabil í valinu á föstudögum. Á hverju tímabili gátu nemendur valið á milli tveggja greina. Ein greinin var snyrting og förðun. Íris Rún, ein af skólaliðunum okkar er snyrtifræðingur og sá um þá kennslu.
Í einni kennslustundinni kenndi hún nemendum undirstöðuatriðin í fótsnyrtingu og einnig fengu nemendur litun og plokkun á augabrúnum hjá Írisi. Hér er hægt að skoða myndir frá þessum tíma.
Nemendur 8. og 9. bekkjar eru byrjaðir að safna í ferðasjóð sinn. En nemendur þessa námshóps áforma skólaferðalag vorið 2011. Einn liður í söfnuninn var að safna áheitum hjá velunnurum skólans og fyrir áheitin fegruðu nemendur skólalóðina. Veðurguðirnir voru þessari vinnu ekki hliðhollir. Rigningin skolaði burtu málningarvinnu nemenda en þeir létu það ekki á sig fá heldur unnu bara þeim mun meira og betur við önnur störf sem þurfti að vinna á skólalóðinni, eins og að gróðursetja sumarblóm, fegra blómapotta með mósaíki og hreinsa stéttar og beð.
Nemendur í yngsta námshópi fóru í heimsókn í Litla Dunhaga þar sem Hulda, umsjónarkennari þeirra býr. Þar skoðuðu nemendur lömbin og fengu að sjá þegar tvö lömb litu dagsins ljós, borða undir berum himni, skoða vélarnar og að kíkja eftir hreiðrum niðri við á.
Nemendur í yngsta námshópnum helguðu útiskólatímann sinn einn daginn hreinsun á skólasvæðinu. Þau rákust ekki bara á rusl heldur líka á hreiður og íbúa þess.
Dagana 13. - 19. maí var Grasrótarvika UEFA. Þelamerkurskóli tók þátt í þeirri viku. Í íþróttatíma einn daginn í þeirri viku spiluðu nemendur knattspyrnu berfætt á sparkvellinum.
Í tilkynningu frá KSÍ kemur fram að sú leið er valin til að vekja athygli á því að ekki geta allir spilað við fyrirtaks aðstæður, eins við hér í Þelamerkurskóla búum til dæmis við.
Í morgun, þriðjudaginn 18. maí, var síðasti smiðjutími vetrarins. Þá fóru allir hóparnir út að útiskólasvæði til að ganga frá húsunum sínum. Í lokin gátu allir grillað sér sykurpúða og leikið sér í leiktækjunum sem eru á útiskólasvæði skólans.
Hér eru fleiri myndir sem teknar voru í Hlíðarfjalli 9. apríl 2010. En þá fóru nemendur og starfsfólk skólans á skíði saman.
Föstudaginn 9. apríl 2010 fóru nemendur og starfsfólk skólans í Hlíðarfjall á skíði. Myndirnar í þessu albúmi voru teknar þann dag. En þá lék veðrið við okkur og færið var eins og það gerist best.
Í þessu myndaalbúmi eru myndir sem teknar voru á árshátíð Þelamerkurskóla. Hátíðin var haldin í íþróttahúsinu á Þelamörk fimmtudaginn 25. mars. Nánast allir nemendur skólans stigu á svið og stóðu sig sérstaklega vel.
Í þessu albúmi eru myndir frá generalprufu árshátíðar skólans. Prufan var haldin sama dag og árshátíðin. Flest atriði árshátíðar voru leikin á prufunni. En hver námshópur átti atriði á senunni.
Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fór fram þriðjudaginn 2. mars í Möðruvallaklausturskirkju.
Þar komu saman nemendur, starfsfólk og foreldrar nemenda úr Grenivíkurskóla, Hrafnagilsskóla, Stórutjarnaskóla, Valsárskóla og Þelamerkurskóla.
Í þessu albúmi eru myndir sem teknar voru á lokahátíðinni.
Á hverju ári taka nemendur 7. bekkjar þátt í Stóru upplestrarkeppninni. Þá fá nemendur þjálfun í upplestri og framsögn. Í febrúar eða mars ár hvert er síðan haldin upplestrarhátíð í skólanum. Þá lesa nemendur bæði samfelldan texta og ljóð fyrir áheyrendur. Dómnefnd skipuð fulltrúrum frá skólanum, leikfélaginu og foreldrafélginu velja tvo lesara og einna til vara úr hópi 7. bekkinga til að taka þátt í lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar. Í ár var lokahátíðin í höndum Þelamerkurskóla og var hún haldin 2. mars í Möðruvallarklausturskirkju.
Fulltrúar skólans í ár voru Astrid María Stefánsdóttir og Katrín Birna Vignisdóttir.
Í þessu albúmi eru myndir sem voru teknar á upplestrarhátíð skólans.
Í lok febrúar fengum við Jóhann Breiðfjörð í heimsókn. Hann tekur að sér að fræða nemendur um Nýsköpunarkeppni grunnskólanna og að kynna fyrir þeim undraheima Legókubbanna.
Í þessu albúmi eru nokkarar myndir sem voru teknar þegar 3.-4. bekkur hittu Jóhann.
Þorrablót nemenda 7.-10. bekkjar er haldið árlega í skólanum. Nemendur 9. bekkjar og umsjónarkennari þeirra sjá um skipulag og stjórnun blótsins. Á blótið er foreldrum 9. og 10. bekkjar boðið, starfsfólki og bílstjórum skólans ásamt mökum þeirra.
Á hverju ári halda nemendur þorrablót í skólanum. Nemendur 1.-6. bekkjar halda sitt þorrablót í kringum hádegið á þorrablótsdegi skólans.
Sú hefð hefur skapast að það er 6. bekkur hverju sinni sem heldur utan um skipulag og stjórnun blótsins. Í ár spilaði hljómsveit skólans sem að mestu er skipuð nemendum úr 6. bekk á blótinu, nemendur sungu brag um gestalista blótsins undir laginu Gestalistinn með Ingó og veðurguðunum og Eiríkur skólastjóri Tónlistarskóla Eyjafjarðar stjórnaði fjöldasöng.
Í þessu albúmi eru nokkrar myndir sem teknar voru á þorrablóti nemenda 1.-6. bekkjar.
Í lok öskudagsballsins var marserað bæði í salnum og um allan skóla. Hér eru myndir sem teknar voru þá.
Í þessu albúmi eru myndir sem voru teknar á söngkeppninni sem var haldin á öskudagsballi skólans. Alls stigu níu lið á svið og fengu þau öll viðurkenningu fyrir frammistöðuna.
Í þessu albúmi eru myndir frá því þegar kötturinn var sleginn úr tunnunni á öskudagsballinu í skólanum á sprengidag.
Tunnudrottning var Bergrós í 10. bekk.
Í þessu albúmi eru myndir sem sýna hvernig nemendur hjálpast að við að fullgera gervin fyrir öskudagsballið. Hér eru einnig myndir af nokkrum nemendum strax eftir að þeir voru málaðir og gerðir klárir fyrir ballið.
Á sprengidagsmorgunn mættu nemendur í öskudagsbúningunum sínum. Þann dag er haldið öskudagsball í skólanum þar sem meðal annars kötturinn er sleginn úr tunnunni og haldin söngkeppni öskudagsliðanna.
Hér eru myndir sem teknar voru í morgunmatnum og annarri kennslustund sprengidagsins.
Mánudaginn 8. janúar fór fram skólakeppni Þelamerkurskóla í Skólahreysti. Þá var keppt í öllum greinum Skólahreystis og gátu nemendur úr 7. - 10. bekk skráð sig til keppninnar. Allir nemendur skólans fylgdust með keppninni og voru veittar viðurkenningar fyrir besta árangur í hverri grein. Að skólakeppninni lokinni velja íþróttakennarar skólans fulltrúa hans í undanriðli Skólahreystis sem fer fram í mars n.k.
Hér eru nokkrar myndir frá keppninni.
Á ári hverju halda nemendur 1. bekkjar hátíð í tilefni af því að þeir hafa verið 100 daga í Þelamerkurskóla.
Hér eru myndir frá 100 daga hátíðinni sem haldin var 29. janúar 2010.
Í Þelamerkurskóla er forskóli Tónlistarskóla Eyjafjarðar inni í stundatöflu nemenda 1.-3. bekkjar. Með því móti fá allir nemendur skólans tækifæri til að kynnast tónlistinni undir stjórn tónmenntakennara. María Gunnarsdóttir tónmenntakennari sér um kennsluna í forskólanum.
Í síðustu viku héldu nemendur tónleika fyrir foreldra og aðra gesti. Hér eru myndir frá tónleikunum.
Litlu jólin voru haldin miðvikudaginn 16. desember.
Fyrst komu nemendur og kennarar saman og borðuðu morgunmat, síðan var haldið í kirkju að Möðrvöllum, svo var safnast saman á sal og inn í heimastofur. Að loknum hátíðarhádegisverði var svo jólaball.
Skólinn fékk góðar heimsóknir þennan dag. Arnsteinn Stefánsson frá Stóra Dunhaga kom á sal og sagði frá jólunum og jólaföstunni þegar hann var að alast upp í Hörgárdal.
Síðan komu gestir úr fjöllunum; hjónin Grýla og Leppalúði heimsóttu börnin inn í heimastofur þeirra og synir þeirra Stekkjastaur og Giljagaur komu á jólaballið.
Hér eru myndir sem voru teknar á útikennslusvæðinu okkar norðan við Laugaland. Hér eru krakkar í síðustu útismiðju sinni fyrir jólafrí.
Mánudaginn 14. desember var haldið jólaskólabingó í skólanum. Bingóið var haldið af 8. og 9. bekk og rann afrakstur þess í ferðasjóð nemenda.
Fyrir jólafrí á hverju ári fara nemendur og kennarar skólans upp í hlíðina ofan við skólann og kveikja þar á stormkertum. Kertin mynda ljóshaf uppi í hlíðinni sem logar lýsir upp myrkrið langt fram eftir degi.
Mánudaginn 14. desember 2009 var farið með kertin uppeftir. Hér eru myndir frá þeirri ferð. Eins og sjá má á myndunum var mikið myrkur, því enginn var snjórinn og þrátt fyrir að það væri heiðskírt var tunglið hvergi að sjá.
Á hverju ári í desember búa námshóparnir til póstkassa þar sem safnað er saman jólakortum nemenda.
Þá tekur dómnefnd einnig til starfa og metur póstkassana til verðlauna. Verðlaunin eru síðan afhent á litlu jólum skólans.
Í þessu albúmi eru póstkassarnir í desember 2009.
Í þessu albúmi eru myndir sem voru teknar eftir hádegið á laufabrauðsdaginn. Þá fóru nemendur, starfsfólk og gestir niður í íþróttahús til að horfa á jólasýningu fimleikahóps Þelamerkurskóla og til að leika sér saman.
Að því loknu var farið í sund í Jónasarlaug.
Nemendur skólans skáru laufabrauð, föndruðu jólakort og spiluðu saman, föstudaginn 11. desember. Laufabrauðsdagurinn er árlegur viðburður í skólanum. Og á myndunum er ekki annað að sjá en að nemendur jafnt sem starfsmenn hafi skemmt sér vel.
Í þessu albúmi eru myndir frá fyrri hluta dagsins.
Í nóvember og desember í ár höfum við fengið margar góðar heimsóknir. Hingað hafa komið skáld, rithöfundar, hljóðfæraleikarar, undirleikarar, slökkviliðsmenn og verðandi fyrstu bekkingar.
Í þessu albúmi er að finna myndir sem teknar hafa verið við þessi tækifæri á undanförnum vikum.
Á útivistardegi haustannar var farið á skauta í Skautahöll Akureyrar og síðan í sund í Akureyrarlaug. Elstu nemendur skólans brugðu sér í Rósingborg á Akureyri til að skoða aðstæður þar.
Í þessu albúmi er að finna myndir úr skautahöllinni.
Á degi íslenskrar tungu settu nemendur Þelamerkurskóla upp sýningu í Jónasarlaug. Á sýningunni voru verkefni sem nemendur höfðu unnið í vikunni fyrir dag íslenskrar tungu. Kveikja verkefnanna voru störf og ævi Jónasar Hallgrímssonar.
Eftir hádegið þann 16. nóvember fór nemendur 1. - 5. bekkjar í sund. Hér eru myndir af sýningunni og ljóðasundi yngstu nemendanna.
Föstudaginn 23. október nýttu nemendur og starfsfólk skólann daginn til að búa til slátur. Nemendur unnu í 9-11 manna hópum og fóru á milli stöðva þennan daginn.
Á einni stöðinni bjuggu þeir til slátur, á einni þeirra gerðu þeir myndverk um borðhald og á þeirri þriðju gátu þeir spilað á spil. Dagurinn gekk vel afar fyrir sig.
Stúlkurnar í 6. og 7. bekk gerðu borðaskreytingar með sjálfvöldum þemum í heimilisfræði föstudaginn 9. október. Þemum voru hafið, sólarströndin og veturinn.
Skreytingarnar voru hver annarri fegurri og hugvitsamlegri.
2. október kom fyrsti snjórinn og voru nemendur að vonum glaðir því þá var hægt að taka fram rassaþoturinar.
Þessar myndir sýna vel fögnuðinn.
Norræna skólahlaupið 2009 var tileinkað vinnu gegn einelti. Í þetta sinn hlaupu og gengu nemendur gegn einelti eftir að hafa safnað áheitum til styrktar söfnun Jokobs Einars Jakobssonar. Hann hjólaði til styrktar samtökunum Liðsmenn Jeríkós en þau hafa á stefnuskrá sinni að berjast gegn einelti.
Í þessu albúmi eru myndir frá deginum.
Í fyrsta tíma föstudaginn 25. september komu nemendur og kennarar skólans saman á sal og sungu nokkur lög undir stjórn Eiríks Stepensen skólastjóra Tónlistarskóla Eyjafjarðar.
Í ár verður söngsalur að föstum lið í starfi Þelamerkurskóla. Allir eru velkomnir á söngsal með okkur. Hann er auglýstur í Dagskrá skólans sem fer heim með nemendum í upphafi hvers mánaðar.
Í ágúst 2009 var byrjað að flokka sorp í Þelamerkurskóla. Flokkunin er liður í Grænfánaáætlun skólans en nemendur og starfsfólk áforma að flagga Grænfánanum í lok skólaársins 2009-2010. Hér er að finna myndir sem voru teknar þegar við fengum heimsókn frá Endurvinnslunni á Akureyri og kynningu á starfinu þar.
Miðvikudaginn 23. september var opinn dagur í Þelamerkurskóla. Þá gafst foreldrum og öðrum velunnurum skólans kostur á að kynna sér starf yfirstandandi vetrar.
Foreldrar fjölmenntu í skólann, heimsóttu nemendur í heimastofur og gæddu sér á kartöflusúpu og heimabökuðu brauði úr mötuneyti skólans.
Nemendur 1. - 5. bekkjar eru í útiskólanum einn morgunn í viku. Í þessu albúmi eru myndir sem teknar voru þegar yngstu nemendur skólans hituðu upp fyrir gönguna að útiskólasvæðinu. Þá var farið í nokkra stærðfræðileiki.
Í Þelamerkurskóla er kröftug myndmenntakennsla. Í haust hafa yngstu nemendurnir unnið með þemað Ef ég væri tröll og nemendur á miðstigi með haustlitina.
Í þessu albúmi er að finna myndir frá tveimur af smiðjum haustannar. Báðar þessar smiðjur fara fram á útiskólasvæði skólans. Önnur smiðjan kallast skógarnytjar og hin útismiðja.
Á myndunum má sjá nemendur 6. og 7. bekkjar búa til skýli sem eru hluti af verkefni sem fjallar um það hvernig land verður til. Hluti vinnunnar fer fram innan veggja kennslustofunnar og hluti hennar í útismiðju.
Nemendur 3.-5. bekkjar fluttu vinnu sína í stærðfræði út á skólalóð í blíðunni á haustdögum 2009. Viðfangsefnið var mælingar og á myndunum má sjá að mælt var víða á skólalóðinni.
Nemendur 9. og 10. bekkjar fara á hverju ári niður að Hörgá til að veiða og einnig upp í skóginn ofan við skólann til að búa til kransa úr efniviðnum sem þar er og einnig til að tína ber. Þetta er liður í lífsleiknikennslu þeirra sem ber heitið ÉG.
Í Þelamerkurskóla starfar útiskóli af krafti. Í stundaskrá nemenda 1. - 5. bekkjar er einn dagur í viku helgaðar útiskóla. Einnig eru haust- og vordagar nýttir vel til kennslu undir berum himni.
Í skólabyrjun haustið 2009 æfðu kennarar sig í lausn stærðfræðiverkefna utan dyra.
Hér eru myndir frá útiskóla Þelamerkurskóla á haustdögum 2009.
Jakob Einar Jakobsson hjólar kringum landið til styrktar Liðsmönnum Jeríkó. Liðsmenn Jeríkó voru stofnuð til að berjast gegn einelti.
Jakob Einar kom við í Þelamerkurskóla þann 2. september 2009 og sagði nemendum 6. - 10. bekkjar frá ferð sinni og málstaðnum. Hér eru myndir frá heimsókn hans.
Skólaárinu 2008-2009 var slitið föstudaginn 29. maí í Hlíðarbæ.
Þar voru brautskráðir þeir nemendur sem haust hefja framhaldsskólanám, verðandi fyrstu bekkingar boðnir velkomnir, afhentir vitnisburðir vetrarins og veittar viðurkenningar fyrir starfið í vetur.
Fimmtudaginn 28. maí var síðasti skóladagur skólaársins 2008-2009. Þá var að venju haldin vorhátíð skólans.
Þá komu nemendur og foreldrar saman niðri í íþróttahúsi og skemmtu sér. Síðan var farið í sund og að lokum safnast saman við útiskólasvæðið í Mörkinni. Þar gæddu menn sér á grilluðum pylsum og ís.
Mánudaginn 25. maí var haldið íþróttamót í Þelamerkurskóla. Mótið fékk nafnið Þelamerkurleikarnir og var keppt í langstökki, boltakasti, 60 m spretthlaupi, stígvélakasti, reipitogi, hreystitogi, stinger, Olsen-olsen og hreystigripi.
Í þessu albúmi eru myndir frá leikunum og verðlaunaafhendingunni.
Nemendur 9. bekkjar fengu það verkefni í ÉG-hópnum að ljúka við að skreyta blómaker og að setja í þau sumarblóm.
Stundum er veðrið svo gott að varla er hægt að bregða sér inn til að næra sig. Á gróðursetningadeginum 2009 var veðrið þannig. Þá brá starfsfólk mötuneytis á það ráð að færa matinn út. Þá voru kjúklingar í matinn og ís í eftirrétt. Þetta kunnu nemendur vel að meta.
Nemendur gróðursettu plöntur í landi útiskólans föstudaginn 22. maí s.l. Þetta voru plöntur sem hafa verið í uppeldi hjá útiskólanum í nokkur ár og því um stálpaðar plöntur að ræða.
Hér eru myndir frá vinnudegi nemenda.
Hér er að finna myndir sem teknar voru þegar yngstu nemendur skólans bættust í hópinn við vinnuna að endurbótum útiskólasvæðisins.
Á vordögum 2009 fóru nemendur og kennarar út að bækistöð útiskóla Þelamerkurskóla og tóku til hendinni.
Hér má sjá myndir frá fyrsta áfanga vinnunnar.
Í hverjum mánuði hittast námshópar skólans að loknum skóladegi og gera sér sitthvað til gamans. Á dögunum hittust nemendur 1.-4. bekkjar og léku sér í sundlauginni og fengu sér síðan hressingu sem þeir höfðu með sér að heiman. Og áður en haldið var heim á leið söfnuðust nemendur saman í heimastofunni sinni til að spila.
Hér eru myndir frá þessum degi.
Föstudaginn 8. maí héldu nemendur Þelamerkurskóla sem stunda tónlistarnám í Tónlistarskóla Eyjafjarðar tónleika fyrir samnemendur sína og aðra gesti. Tónleikarnir tókust með mestu ágætum og stóðu bæði flytjendur og áheyrendur sig með mestu prýði.
Þann 30. apríl 2009 fór fram úrslitakeppnin í Skólahreysti. Alls öttu 12 skólar þar kappi og var Þelamerkurskóli meðal þeirra.
Þelamerkurskóla féll áttunda sætið í skaut og er því áttundi besti skólinn af 110 skólum í Skólahreysti.
Hér eru myndir sem teknar voru í ferðinni suður á Skólahreysti.
Eftir að nemendur höfðu skemmt áhorfendum með leik, dansi og hljóðfæraleik var slegið upp diskóteki með DJ Partú Sússý. Hann sá til þess að bæði ungir og gamlir gætu dansað af hjartans list.
Árshátíð Þelamerkurskóla fór fram þann 2. apríl síðast liðinn. Hátíðin var með hefðbundnu sniði. Fyrst stigu allir nemendur skólans á svið og léku fyrir áhorfendur leikrit, dönsuðu og sumir spiluðu á hljóðfæri. Síðan var kaffisala með dýrindis kökuhlaðborði og að lokum var boðið uppá diskótek. Í þessu albúmi er að finna svipmyndir frá leiksýningunum.
Fimmtudaginn 12. apríl fóru nemendur og starfsfólk Þelamerkurskóla í Hlíðarfjall til að njóta útivistar.
Veðrið og færið var með besta móti og gátu allir skemmt sér hið besta. Hér er að finna myndir frá útvistardeginum.
Fimmtudaginn 12. mars sl. vann lið Þelamerkurskóla 8. riðil í Skólahreysti. Lið skólans var skipað þeim Björgvin Helgasyni og Steinunni Davíðsdóttur úr 10. bekk og Daníel Frey Sigmarssyni og Þórdísi Björk Gísladóttur úr 9. bekk.
Að morgni 13. mars fögnuðu nemendur og starfsfólk liðinu þegar þau komu í skólann. Hér eru myndir frá fögnuðinum.
Í þessu albúmi er að finna myndir sem teknar voru í nokkrum smiðjum yngri nemenda. Hér má sjá nemendur í kubbasmiðju, smiðju skólablaðs, hollustusmiðju og spunasmiðju.
Einnig eru nokkrar myndir af verkum nemenda úr myndmennt. Verkefnið var að hann búninga vegna öskudagsins.
Föstudaginn 6. mars var haldið bingó í skólanum. Það var haldið til styrktar ferðasjóði elstu nemenda skólans.
Bingóið þótti takast vel og í öllum spenningnum sem ríkti í matsalnum mátti sjá að börn jafnt sem fullorðnir skemmtu sér vel.
Sú hefð hefur skapast hjá elstu nemendum skólans að halda saman upp á afmælin sín. Þann 3. mars var haldið upp á afmæli Björgvins, Jóns Karls, Stefáns Gunnars og Sólrúnar. Þá var boðið uppá glæsilega köku og pakkaleik.
Þelamerkurskóli tekur þátt í Stóru upplestrarkeppninni. Að þessu sinni voru fulltrúar skólans Gunnar Andri Gunnarsson og Sindri Páll Stefánsson. Hér eru myndir frá upplestrarhátíð skólans og upplestrarkeppninni sem var haldin 4. mars í Valsárskóla.
Á sprengidaginn hefur myndast sú hefð í Þelamerkurskóla að halda öskudagsball þar sem nemendur koma saman og slá köttinn úr tunnunni, öskudagslið syngja fyrir áheyrendur og í lokin marsera nemendur um skólann.
Á þessum myndum má sjá að búningarnir voru fjölbreyttir og skemmtu nemendur og kennarar sér hið allra besta.
Eftir kvöldmat þann 13. febrúar s.l. héldu nemendur 9. bekkjar þorrablót fyrir nemendur unglingadeildar, foreldra nemenda 10. bekkjar, bílstjóra skólans, kennara og starfsmenn.
Nemendur 9. bekkjar setja saman dagskrá, raða á borð og sjá um stjórnun veislunnar. Óhætt er að segja að nú sem fyrr tókst þorrablótið með miklum ágætum og enn sannaðist að þetta er ein af þeim hefðum sem við viljum rækta vel.
Þann 13. febrúar s.l. héldu nemendur 1. - 6. bekkjar þorrablót í skólanum. Blótið fór fram í stofu 5 og skiptu nemendur 5. og 6. bekkjar með sér verkum við undirbúning þess. Hér er hægt að skoða myndir frá blótinu.
Fyrir jólin þarf ýmislegt að stússa. Jólastússið nær líka inn í skólana. Á þessum myndum má sjá nemendur Þelamerkurskóla undirbúa jólin. Hér má sjá bakstur piparkökuhúsa, myndir sem teknar voru á þegar nemendur bjuggu til póstkassana. Og einnig myndir þegar nemendur 3. og 4. bekkjar gerðu jólahreingerningu í heimilisfræðistofunni.
Þann 17. desember héldu nemendur og starfsfólk Þelamerkurskóla litlu jólin.
Þá byrjuðum við daginn á að fá okkur morgunmat saman. Síðan ókum við að Möðruvöllum þar sem var lítil helgistund með séra Solveigu Láru og Gylfa sem lék undir söng á orgel kirkjunnar. Eftir helgistundina héldum við heim að skóla aftur. Þá voru haldin stofujól hjá hverjum námshópi. Hver námshópur fékk jólasveina í heimsókn í stofurnar sínar. Það voru þeir Hurðaskellir og Giljagaur. Nokkri glöggir nemendur bentu Giljagaur á að hann væri heldur snemma á ferðinni. Giljagaur svaraði því til að Grýla hefði gefið honum leyfi til að heilsa uppá börnin í Þelamerkurskóla, því þau væru alltaf svo prúð.
Að loknum stofujólunum snæddu nemendur og starfsfólk hangikjöt með öllu tilheyrandi, meðal annars laufabrauðið sem nemendur höfðu skorið út fyrr í desember. Síðan var haldið upp í sal og þar beið jólatréð og Heimir Ingimars með gítarinn. Litlu jólunum lauk með því jólalögin voru sungin hástöfum og gengið í kringum jólatréð.
Þriðjudaginn 16. desember fóru nemendur og starfsfólk Þelamerkurskóla upp í skógræktina ofan við skólann. Ferðinni var heitið upp að Álfaborginni. Þegar þangað var komið settu nemendur stormkerti á klappir í borginni og kveiktu á þeim. Eftir að því var lokið mátti sjá hlíðina uppljómaða langt fram eftir degi.
Þegar heim að skóla var komið aftur var boðið uppá kakó, kringlur og piparkökur sem nemendur höfðu bakað í desember í heimilisfræði hjá Ingu. Að því loknu var söngsalur með Hjörleifi Hjartarsyni.
Eftir hádegið á laufabrauðsdeginum héldu nemendur og kennarar skólans niður í íþróttahús og sundlaug. Í fyrri lotunni var fimleikasýning. Hana héldu nemendur sem í vetur hafa verið á fimleikaæfingum hjá Ingu Matt. Æfingarnar eru strax eftir skóla á þriðjudögum.
Eftir fimleikasýninguna gátu nemendur valið milli þess að vera í frjálsum tíma í íþróttasalnum eða að fara í sundlaugina.
Hér eru myndir úr þriðju lotu á laufabrauðsdeginum. Laufabrauðið hrannaðist upp og allir gátu gert nokkur jólakort ásamt því að skemmta sér við að spila við skólafélaga sína.
Laufabrauðið verður snætt á litlu jólunum og á þorrablótunum í febrúar.
Hér eru myndir frá annarri lotunni á laufabrauðsdeginum. Ekki er annað að sjá en að allir skemmti sér vel og hafi nóg fyrir stafni.
Mánudaginn 6. desember skáru nemendur laufabrauð, spiluðu saman og bjuggu til jólakort. Nemendahópnum var skipt í þrjá hópa og var hver hópur í eina klukkustund við hverja iðju.
Hóparnir voru aldursblandaðir frá 1. bekk og uppí 10. bekk og sáu þeir eldri um þá yngri. Í þessu albúmi eru myndir frá fyrstu lotunni.
Slökkvilið Akureyrar heimsótti nemendur 1. - 4. bekkjar í byrjun desember. Þá var farið yfir eldvarnir og nemendur fengu að skoða slökkvibíl.
Hér er hægt að skoða myndir frá þessari heimsókn.
Í útieldhúsi í mesta frostinu í byrjun desember fóru stelpurnar í smiðjuhópnum Grundir út að Mörkinni til að elda sér núðlur við opinn eld.
Hér má sjá hve veðrið getur verið fallegt í froststillunni í Hörgárdal.
Alla þriðjudaga í desember kemur Hjörleifur Hjartarson í Þelamerkurskóla og stjórnar söng á sal. Þá æfa nemendur og kennarar jólalögin fyrir jólaballið sem haldið verður áður en við förum í jólafrí.
Tvo fyrstu þriðjudagana syngjum við í fyrsta tíma en 16. desember syngjum við klukkan 10:00. Allir eru velkomnir í skólann til að taka undir í jólasöngnum.
Seint í nóvember en tímanlega fyrir aðventuna fóru nemendur 1. - 4. bekkjar ásamt nemendur 8. bekkjar upp í skógrækt til að sækja jóltrén sem prýða skólann á aðventunni.
Á þessum myndum má sjá hvernig það gekk fyrir sig. En myndirnar eru nokkuð dökkar því þetta var snemma morguns og nú birtir ekki hér í Hörgárdalnum fyrr en í kringum hádegið. Á myndunum sést hve vel endurskinsvestin sem kvenfélagið í sveitinni gaf skólanum í fyrra koma sér í myrkrinu.
Jólaföndur Foreldrafélags Þelamerkurskóla fór fram laugardaginn 29. nóvember. Fjölmennt var við föndrið og margir fallegir munir urðu til sem eflaust eiga eftir að rata í jólapakka.
Dagur íslenskrar tungu var haldinn hátíðlegur í Þelamerkurskóla í ár eins og endranær. Nemendur og kennarar söfnuðust saman á sal og 7. og 8. bekkur sá um stutta dagskrá sem var tileinkuð Jónasi Hallgrímssyni. Í vikunni á undan höfðu nemendur skólans unnið verkefni sem tengdust skáldinu á einhvern hátt.
Strákarnir í Hólum hafa gaman að eldinum. Í þessu albúmi eru myndir af þeim elda mat þegar þeir voru í útieldhúsi í smiðjum.
Tónlistarskóli Eyjafjarðar hélt uppá 20 ára afmæli sitt vikuna 3. til 7. nóvember. Meðal viðburða í afmælisfögnuðinum voru tónleikar í Þelmerkurskóla.
Allir nemendur Þelamerkurskóla sem stunda tónlistarnám í Tónlistarskóla Eyjafjarðar spiluðu á tónleikunum.
Fimmtudaginn 6. nóvember fóru nemendur 5. og 6. bekkjar að Stórutjörnum á íþróttadag Samskólanna. Þar var farið í krakkablak, fótbolta, leiki og sund. Á þessum myndum má sjá að nemendur hafa skemmt sér vel á íþróttadeginum.
Nemendur 5. og 6. bekkjar héldu bekkjarkvöld föstudaginn 31. október. Þema kvöldsins var bleikur litur. Einnig var haldin kökusamkeppni hjá bekknum á þessu bekkjarkvöldi. Kökurnar voru bæði litríkar og afskaplega bragðgóðar.
Fimmtudaginn 6. nóvember hélt Tónlistarskóli Eyjafjarðar nýstárlega tónleika. Tónleikarnir fóru fram í fjósinu Litla Dunhaga. Nemendur fyrsta til fjórða bekkjar mættu á tónleikana ásamt öðrum gestum. Í þessu albúmi eru myndir frá tónleikunum.
Þegar nemendur og starfsfólk Þelamerkurskóla gerðu slátur miðvikudaginn 22. október 2008 voru tvær myndavélar á ferðinni um skólann.
Í þessu albúmi er fleiri myndir frá sláturgerðinni og annarri starfsemi þennan daginn.
Miðvikudaginn 22. september gerðu nemendur og starfsfólk Þelamerkurskóla slátur. Það gekk mjög vel og ljóst er hægt er að velta fyrir sér hvort ekki er hægt að gera sláturgerðina að föstum lið í starfi skólans.
Skólatöskudagurinn fór fram í Þelamerkurskóla miðvikudaginn 24. september. Hann er framtak Iðjuþjálfafélags Íslands. Og markmið hans er að gera nemendur meðvitaða um rétta stillingu á skólatöskum sínum og að þeir passi uppá að töskurnar séu ekki of þungar.
Í þessari möppu eru myndir af fyrsta hópi eldri nemenda sem var í útieldhúsi í fyrstu smiðjulotunni.
Eldamennskan fer fram við Mörkina útikennslustofu Þelamerkurskóla.
Zippý er skordýr sem hefur vetursetu hjá nemendum 1. - 4. bekkjar. Hann kom þangað 23. september. Hér eru myndir sem teknar voru þegar hann kom í Þelamerkurskóla.
Zippý er hluti af námsefni í lífsleikni hjá 1. - 4. bekk skólans.
Í haust voru smiðjur settar inn á stundaskrá nemenda. Í smiðjum fá nemendur að fást við ýmis verkefni tengdum verk- og listgreinum. Nemendur fara fjórum sinnum í hverja smiðju og eru fjórar í gangi í hverri lotu. Í dag, 16. september, lauk fyrstu lotunni. Í þessu albúmi er að finna afrakstur tveggja smiðja elstu nemenda, mósaiksmiðju og textílsmiðju.
Ef þú smellir hér færðu upplýsingar um smiðjurnar okkar.
Föstudaginn 12. september fengum við heimsókn á bílaplanið okkar. Þar voru á ferðinni rúmlega 60 fornbílar sem fóru framhjá skólanum í svokölluðu fornbílaralli.
Flestir bílanna komu við á planinu og sviguðu í kringum keilur sem þar hafði verið komið fyrir. Óhætt er að segja að sjaldan hafi jafn margar glæsikerrur látið ýskra í hjólbörðum sínum svo snemma dags í Hörgárdal. Heimsóknin vakti bæði aðdáun og kátínu þeirra sem horfðu á kúnstir ökumanna. Og margir ökumanna höfðu greinilega gaman að því að sýna fararskjóta sína og ökuleikni.
Allir nemendur skólans ásamt starfsfólki hans fjölmenntu í útivist í Gásafjöru fimmtudaginn 11. september. Þar var farið í ýmsa leiki og þrautir. Hér má sjá myndir úr þeirri ferð.
Þelamerkurskóli var settur í Mörkinni útikennslusvæði skólans 22. ágúst 2008. Þangað mættu nemendur, starfsfólk, foreldrar og aðrir gestir.
Að lokinni setningu inni í rjóðrinu þáðu allir viðstaddir kakó og kex við eldstæðið framan við Mörkina.
Vorhátíð Þelamerkurskóla fór fram með hefðbundnu sniði föstudaginn 30. maí. Hún byrjaði á samveru í íþróttahúsi skólans þar sem nokkrar stúlkur úr skólanum sýndu fimleika og farið var í hópleiki.
Því næst fóru nemendur og foreldrar í sund og að lokum var samvera með leikjum og grilluðum pylsum framan við skólann.
Nemendur 1. - 4. bekkjar eru utandyra við nám og störf á hverjum miðvikudagsmorgni. Miðvikudaginn 28. maí gróðursettur þeir tré og fóru svo niður að Hörgá til að vaða og sulla í ánni og til að steikja sér pylsur, brauð og sykurpúða við opinn eld.
Nemendur 3. og 4. bekkjar héldu kynningu á vinnu sinni í samfélagsfræði, náttúrufræði og íslensku þann 27. maí sl.
Nemendur höfðu unnið með verkefnið Ísland áður fyrr, búið til ljóð um vorkomuna og sveitina ásamt því að sýna líkan sem þeir höfðu búið til af umhverfi skólans.
Dagana 23. - 27. maí komu Danir frá í heimsókn í Þelamerkurskóla. Í þessu albúmi er hægt að skoða myndir frá ferð sem þeir fóru í Mývatnssveit með elstu nemendum Þelamerkurskóla.
Í þessu albúmi er að finna myndir sem voru teknar þegar elstu nemendur skólans unnu í útikennslustofu skólans fimmtudaginn 22. maí.
Þá urðu til leiktækin inni í rjóðrinu, hliðið inn í kennslustofuna og hengirúmið.
Vikuna 19. - 23. maí vinna elstu nemendur skólans við að snurfusa útiskólastofu skólans. Mánudaginn 19. maí var stofan drenuð og búinn til göngustígur úr spírum og kurli sem var búið til í útikennslu yngstu barnanna s.l. haust. Þennan daga var einnig búið til áningaborð úr spírum.
Spírurnar fékk skólinn frá Hjalteyri á síðustu haustdögum. Nú koma þær sér að góðu gagni við að snyrta útileikstofuna og til að gera hana enn betri en hún hefur áður verið.
Í þessu albúmi eru myndir af verkum nemenda sem þeir hafa unnið í myndmenntatímum hjá Öllu.
Hér er að finna myndir af líkani af skólalóðinni sem nemendur 3. - 4. bekkjar hafa unnið á undanförnum vikum. Einnig eru myndir af verkum nemenda sem þeir unnu eftir að hafa skoðað sýningu á verkum Jóns Laxdal á Gráa svæðinu.
Einnig eru myndir af verkum sem eru í vinnslu. Það eru gifsgrímur 7. og 8. bekkinga og steinaverk sem eiga að prýða svæði útiskólans í rjóðrinu norðan við skólann.
Hér eru nokkrar myndir frá því að sparkvöllurinn var í byggingu. Völlurinn verður vígður föstudaginn 25. apríl kl. 13:15.
Miðvikudaginn 23. apríl hreyfðu nemendur og starfsfólk sig til söfnunar fyrir bágstödd börn. Þessi viðburður var skipulagður í samvinnu við Unicef á Íslandi.
Upplestrarhátíð Þelamerkurskóla var haldin 28. mars s.l. Þar voru valdir tveir fulltrúar skólans til að taka þátt í Stóru upplestrarkeppninni þann 2. apríl sem fer fram í Hrafnagilsskóla.
Á hátíðinni voru þær Bryndís Gunnarsdóttir og Jónína Helgadóttir valdar sem fulltrúar skólans.
Árshátíð Þelamerkurskóla var haldin með pompi og prakt í gærkvöldi. Auðséð var að nemendur höfðu lagt á sig mikla vinnu við undirbúning atriða og umgjörð alla.
Margir nemenda Þelamerkurskóla stunda tónlistarnám í Tónlistarskóla Eyjafjarðar. Tónlistarnám þeirra er fellt inní stundatöflu þeirra. Í upphafi mars var haldinn tónfundur í tilefni af Degi tónlistarskólanna.
Þelamerkurskóli tók þátt í Skólahreysti fimmtudaginn 28. febrúar s.l. Lið skólans, Björvin, Steinunn, Daníel og Þórdís lenti í 2. sæti sem er stórkostlegur árangur þar sem liðið var aðeins tveimur stigum undir sigurliðinu.
Nemendur í 7. - 10. bekk Þelamerkurskóla hafa í gegnum tíðina haldið þorrablót í skólanum. Það eru nemendur 9. bekkjar sem á hvert bera hitann og þungann af undirbúningi og framkvæmd blótsins. Umsjónarkennarar þeirra, Halla og Anna Rósa ásamt starfsfólki mötuneytis leggja líka hönd á plóg við undirbúninginn.
Nemendur bjóða starfsfólki skólans og mökum þeirra á blótið ásamt bílstjórum og mökum þeirra og einnig er foreldrum nemenda 9. bekkjar boðið til veislunnar.
Það er með sanni hægt að segja að nemendur hafi leyst verkefnið afar vel af hendi og að gestir þeirra hafa kunnað vel að meta bæði mat og skemmtiatriði.
Tveir yngstu námshóparnir eru saman í vali tvo tíma í viku. Á þessum myndum má sjá að margt er í boði og greinilegt að nemendur eru iðjusamir í þessum tímum.
Eftir hádegi á sprengidag er haldin öskudagshátíð Þelamerkurskóla. Þá klæða nemendur sig í öskudagsbúningana sína, slá köttinn úr tunnunni, dansa og öskudagsliðin syngja fyrir samnemendur sína.
Anna Guðrún Grétarsdóttir tölvukennari skólans tekur stundum að sér að vera hirðljósmyndari skólans. Á jólaljósadeginum tók hún myndavélina með sér og myndaði nemendur við leik og störf.
Þegar nemendur komu heim að að Þelamörk eftir jólaljósaferðina upp að Álfahöllinni skiptust þeir í þrjá aldursblandaða hópa sem fóru á milli stöðva þar sem sýslað var við ýmislegt tengt jólunum; laufabrauðsgerð, skreytingu piparkakna og spil. Hópaskipting þessa dags tók mið af því að eldri nemendur leiðbeindu þeim yngri við það sem í boði var á stöðvunum.
Þriðjudaginn 11. desember byrjuðu nemendur daginn á að fara upp í hlíðina ofan við skólann til að kveikja á stormkertum uppi við Álfahöllina sem þar er. Yngstu nemendur hafa haft þennan sið undanfarin ár og í ár buðu þeir eldri nemendum sem vildu slást í hópinn með sér.
Við undirbúning aðventunnar og jólanna er mikið um að vera í smíðum, saumum, heimilsfræði og myndmennt. Á þessum myndum má sjá lítið sýnishorn af starfseminni þessa dagana.
Nemendur 1. - 4. bekkjar fóru í vettvangsferð að Dagverðartungu til að kanna hvernig hvernig hangikjöt verður til. Árni Arnsteinsson bóndi í Stóra Dunhaga tók á móti börnunum og gaf þeim flís að smakka.
Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson heimsótti Þelamerkurskóla á Degi íslenskrar tungu þann 16. nóv. sl. Á myndunum má glöggt sjá hve gaman var í heimsókninni og hve vel börnin stóðu sig við undirbúning og framkvæmd móttöku hans.
Eftir að heimsókn forseta Íslands á Degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember s.l. lauk sýndu nokkrir nemendur úr 5., 6. og 7. bekk dagskrá sem þeir höfðu sjálfir sett saman og æft í tilefni dagsins.
Í tilefni af því að 200 ár eru liðin frá fæðingu Jónasar Hallgrímssonar á Degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember 2007 heimsóttir forseti Íslands herra Ólafur Ragnar Grímsson Þelamerkurskóla. Í heimsókninni afhenti hann elstu nemendum skólans ævisögu Jónasar sem kom út í tilefni af afmæli Jónasar. Nemendur lögðu sig fram um að taka vel á móti forsetanum.
Nemendur í yngsta aldurshópnum héldu áfram sláturgerðinni og bjuggu til blóðmör um daginn. Á myndunum má sjá að nemendur báru sig fagmannlega við sláturgerðina.
Eitt af haustverkunum hjá 1. og 2. bekk var að búa til slátur. Eins og myndirnar hér sýna eru hér á ferðinni miklir búmenn og konur sem kunna til verka.
Þann 12. október s.l. buðu nemendur í elsta námshópi 8. bekkinga velkomna á unglingastig.
Við Þelamerkurskóla er útikennsla. Nemendur fyrsta til fjórða bekkjar eru í útikennslu alla miðvikudagsmorgna og hjá nemendum elsta námshóps er boðið uppá útkennsluna sem val. Á meðfylgjandi myndum má sjá elstu nemendur við vinnu í skógarrjóðrinu norðan við skólann en þar vinna þeir að gerð útikennslustofu.
Einnig er hægt að skoða myndir þegar yngstu nemendur fengu Einar í heimsókn og meðferðis hafði hann nokkra fiska sem nemendur gátu skoðað jafnt að utan sem innan.
Á fyrstu dögum skólaársins gengu nemendur og starfsfólk upp að Hraunsvatni. Þegar komið var upp að vatninu veiddu nokkrir nemendur á meðan aðrir tíndu ber. Á einhverjum myndanna má sjá að ekki var öllum vel við flugurnar sem halda sig nærri vatninu.
| S | M | Ţ | M | F | F | L | |||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | 2 | 3 | 4 | ||||||
| 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | |||
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | |||
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | |||
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |