Eftir kirkjuferðina að Möðruvöllum söfnuðust allir saman á sal. Þar las Bryndís Sóley upp stutta frásögn af jólunum í gamla daga. Skólakór Þelamerkurskóla flutti leikrit með söngvum og síðan voru veitt verðlaun í póstkassakeppninni. Það var yngsti námshópur skólans sem hlaut 1. verðlaunin, 7.-8. bekkur fékk 2. verðlaun og 3. bekkur 3. verðlaun.
Þegar nemendur voru komnir inn í stofur sínar birtust skötuhjúin Grýla og Leppalúði og þau fengu það hlutverk að dreifa jólapökkum til nemenda.

