Árshátíð skólans fór fram fimmtudaginn 14. apríl. Fjölmenni kom og sá sýninguna, ásamt því að gæða sér á kökum og kaffi að sýningu lokinni.
Allir nemendur skólans fóru á svið og var mikið lagt í atriðin hjá námshópunum. Einnig sýndu nemendur sem höfðu verið á dansnámskeiði dans, stúlkur sem höfðu verið í textílvali sýndu föt sem þær höfðu saumað, kór skólans söng við undirleik hljómsveitar skólans og tónlistarnemendur spiluðu fyrir áheyrendur.

