Fimmtudaginn 6. október var bændadagur hjá 9. og 10. bekk. Dagurinn er liður í því að efla tengingu skólans við nærsamfélagið og kynna nemendum hin ýmsu störf sem fengist er við í sveitum Hörgársveitar. Nemendur leysa verkefni sem þeir vinna úr og kynna fyrir samnemedum sínum og kennurum.
Nemendum var skipt upp í hópa og fór hver hópur á einn bæ. Nemendur voru um það bil 4-5 klst. á vettvangi. Nemendur gátu einnig verið lengur ef næg verkefni eru í boði.
Anna Rósa og Sigga höfðu yfirumsjón með deginum. Þær keyrðu á milli bæja og hitta krakkana og ábúendur. Í þessu albúmi eru myndir sem voru teknar í þeirri ferð.

