Dagur íslenskrar tungu var haldinn hátíðlegur í Þelamerkurskóla í ár eins og endranær. Nemendur og kennarar söfnuðust saman á sal og 7. og 8. bekkur sá um stutta dagskrá sem var tileinkuð Jónasi Hallgrímssyni. Í vikunni á undan höfðu nemendur skólans unnið verkefni sem tengdust skáldinu á einhvern hátt.

