Þriðjudaginn 16. desember fóru nemendur og starfsfólk Þelamerkurskóla upp í skógræktina ofan við skólann. Ferðinni var heitið upp að Álfaborginni. Þegar þangað var komið settu nemendur stormkerti á klappir í borginni og kveiktu á þeim. Eftir að því var lokið mátti sjá hlíðina uppljómaða langt fram eftir degi.
Þegar heim að skóla var komið aftur var boðið uppá kakó, kringlur og piparkökur sem nemendur höfðu bakað í desember í heimilisfræði hjá Ingu. Að því loknu var söngsalur með Hjörleifi Hjartarsyni.

