Alla þriðjudaga í desember kemur Hjörleifur Hjartarson í Þelamerkurskóla og stjórnar söng á sal. Þá æfa nemendur og kennarar jólalögin fyrir jólaballið sem haldið verður áður en við förum í jólafrí.
Tvo fyrstu þriðjudagana syngjum við í fyrsta tíma en 16. desember syngjum við klukkan 10:00. Allir eru velkomnir í skólann til að taka undir í jólasöngnum.

