Litlu jólin í Þelamerkurskóla hófust á því að nemendur og starfsfólk fóru til kirkju að Möðruvöllum. Þar tók séra Gylfi á móti hópnum og hélt utan um litla dagskrá sem skólinn hafði sett saman ásamt því að spila undir í söng hópsins.
Í kirkjunni lásu nemendur 7. bekkjar upp jólaguðspjallið og nemendur úr Tónlistarskóla Eyjafjarðar spiluðu fyrir kirkjugesti. Einnig las Ingileif skólastjóri upp jólasögu og séra Gylfi flutti stutta hugvekju. Kirkjuferðinni lauk með því að allir sungu saman Heims um ból.

