Þann 17. desember héldu nemendur og starfsfólk Þelamerkurskóla litlu jólin.
Þá byrjuðum við daginn á að fá okkur morgunmat saman. Síðan ókum við að Möðruvöllum þar sem var lítil helgistund með séra Solveigu Láru og Gylfa sem lék undir söng á orgel kirkjunnar. Eftir helgistundina héldum við heim að skóla aftur. Þá voru haldin stofujól hjá hverjum námshópi. Hver námshópur fékk jólasveina í heimsókn í stofurnar sínar. Það voru þeir Hurðaskellir og Giljagaur. Nokkri glöggir nemendur bentu Giljagaur á að hann væri heldur snemma á ferðinni. Giljagaur svaraði því til að Grýla hefði gefið honum leyfi til að heilsa uppá börnin í Þelamerkurskóla, því þau væru alltaf svo prúð.
Að loknum stofujólunum snæddu nemendur og starfsfólk hangikjöt með öllu tilheyrandi, meðal annars laufabrauðið sem nemendur höfðu skorið út fyrr í desember. Síðan var haldið upp í sal og þar beið jólatréð og Heimir Ingimars með gítarinn. Litlu jólunum lauk með því jólalögin voru sungin hástöfum og gengið í kringum jólatréð.

