Litlu jólin voru haldin miðvikudaginn 16. desember.
Fyrst komu nemendur og kennarar saman og borðuðu morgunmat, síðan var haldið í kirkju að Möðrvöllum, svo var safnast saman á sal og inn í heimastofur. Að loknum hátíðarhádegisverði var svo jólaball.
Skólinn fékk góðar heimsóknir þennan dag. Arnsteinn Stefánsson frá Stóra Dunhaga kom á sal og sagði frá jólunum og jólaföstunni þegar hann var að alast upp í Hörgárdal.
Síðan komu gestir úr fjöllunum; hjónin Grýla og Leppalúði heimsóttu börnin inn í heimastofur þeirra og synir þeirra Stekkjastaur og Giljagaur komu á jólaballið.
