Mánudaginn 26. október fóru nemendur 8. bekkjar í útistærðfræði. Þeim var skipt í tveggja manna hópa og áttu að finna ákveðin form á skólalóðinni og mæla flatarmál og ummál. Nemendur mældu til dæmis form á körfuboltavellinum, glugga, leiktæki, gangstéttarhellur og fleira.
Föstudaginn 7. október héldu svo nemendur 7. - 8. bekkjar áfram að vinna með alls konar mælingar. Þeir mældu rúmmál hluta bæði með reglustiku og í mæliglösum. Nemendur áttu að finna tvo hluti heima sem þeir töldu vera jafnþunga og koma með í skólann. Í upphafi tíma lærðu nemendur að stilla og nota skálavog og svo áttu þeir að vigta hlutina sína. Þetta var mjög skemmtiÍegur tími og í sumum tilfellum munaði bara örfáum grömmum á hlutum krakkanna. Í þessu albúmi eru myndir sem teknar voru í þessum tíma.

