Eftir stofujólin söfnuðust nemendur og starfsfólk saman í matsalnum og snæddu svínahamborgarhrygg og meðlæti. Að því loknu var jólaball í salnum okkar. Þar mættu jólasveinar sem dönsuðu í kringum jólatréð með nemendum. Að lokum tóku allir þátt í marseríngu áður en haldið var heim í jólafrí.

