Fimmtudaginn 28. október 2010 var nemendum 1.-6. bekkjar boðið í Hof, menningarhúsið á Akureyri. Þar sáu nemendur Bernd Ogrodnik leika Pétur og úlfinn með leikbrúðum sínum og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands spilaði undir. Guðmundur Ólafsson leikari las ævintýrið upp.
Sýningin var vönduð og vel að henni staðið í alla staði. Nemendur Þelamerkurskóla voru sjálfum sér og skólanum til sóma; sýndu þakklæti sitt með því að vera prúðir og kurteisir.

