Veðurblíðan í haust hefur hvatt kennara og nemendur til að vera utandyra. Í þessu albúmi er að finna myndir af 5. og 6. bekk þegar nemendur hans fóru út á skólalóð að reikna.
Nemendur skráðu dæmi á malbikið og skiptust á að reikna út dæmin. Það má með sanni segja að öll skólalóðin hafi verið útreiknuð!

