Nemendur Samskólanna hittast reglulega yfir skólaárið. Á síðasta skólaári var í fyrsta skiptið boðið uppá samveru með gistingu og námskeiði. Þá hittust nemendur í Stjórutjarnaskóla. Í ár var komið á Þelamerkurskóla að bjóða heim. Þá var boðið uppá listasmiðjur; þær voru leiklist, stomp, útivera, dans og sirkuslistir ásamt því að einn hópurinn sá um að elda matinn fyrir allan hópinn. Eftir matinn var kvöldvaka þar sem hóparnir sýndu afraksturinn úr smiðjunum.

