Fimmtudaginn 24. mars fóru nemendur og starfsmenn skólans í Hlíðarfjall og renndu sér í snjónum. Flestir fóru á svigskíði, gönguskíði eða bretti, sumir renndu sér á þotum eða rassaþotum og enn aðrir aðstoðuðu eldhúsfólk eða litlu krakkana.
Veðrið var gott, logn og hlýtt þó sólin hafi ekki skinið á okkur. Í þessu albúmi eru myndir sem teknar voru á einum af þessum dýrðardögum skólans.

