Nemendur 1. og 2. bekkjar bjuggu til snjókarla og snjókerlingar þegar snjórinn kom í vikunni. Nú þegar þessar myndir koma á vefinn okkar þá eru bara snjóhrúgur á lóðinni þar sem karlarnir og kerlingarnar stóðu. Rigningin hefur brætt burtu merkin um karlana og kerlingarnar. En þá var gott að við áttum alla vega myndir af þeim.

