Á hverju ári halda nemendur þorrablót í skólanum. Nemendur 1.-6. bekkjar halda sitt þorrablót í kringum hádegið á þorrablótsdegi skólans.
Sú hefð hefur skapast að það er 6. bekkur hverju sinni sem heldur utan um skipulag og stjórnun blótsins. Í ár spilaði hljómsveit skólans sem að mestu er skipuð nemendum úr 6. bekk á blótinu, nemendur sungu brag um gestalista blótsins undir laginu Gestalistinn með Ingó og veðurguðunum og Eiríkur skólastjóri Tónlistarskóla Eyjafjarðar stjórnaði fjöldasöng.
Í þessu albúmi eru nokkrar myndir sem teknar voru á þorrablóti nemenda 1.-6. bekkjar.
