Heimilisfræði nemenda 7. bekkjar er kennd utandyra í vetur. Í fyrsta tímanum sem átti að fara út og búa til kakó við opinn eld var fyrsta haustlægðin á ferðinni.
Nemendur fóru þá í sveppatínslu, fóru svo inn, hreinsuðu sveppina og sneiddu á meðan þeir iljuðu sér á kakói. Sem að vísu var búið til innandyra í þetta skiptið.

