Á hverju hausti fara nemendur 9. og 10. bekkjar niður að Hörgá til að veiða. Helgi á Syðri Bægisá og Guðmundur í Garðshorni leiðbeina nemendum við veiðiskapinn.
Í ár fóru nemendur í byrjun september og veiddu nokkra fiska sem verða eldaðir viku seinna þegar haldin er veisla þar sem eldað verður úr sveppum, berjum og fiski sem aflað hefur verið í nágrenni skólans. Þessi vinna er hluti af lífsleiknivinnu elstu nemenda í tímum sem kallaðir eru ÉG-tímarnir.

