Föstudaginn 28. maí var haldin vorhátíð skólans. Dagskráin hófst samkvæmt venju niðri í íþróttasal þar sem spilaður var blindrabolti. Þar öttu kappi nemendur úr brautskráningarárgangi skólans og nokkrir kennarar. Og að venju báru nemendur sigur úr býtum.
Síðan voru mynduð tvö lið, annað úr brautskráningarárganginum og hitt úr foreldurm og kennurum. Liðin kepptu svo fjölbreyttu boðhlaupi. Síðan var verðlaunaafhending fyrir besta árangur í Þelamerkurleikunum, blöðruleikurinn og svo var farið í sund.
Eftir sundið var haldið að fánastöng skólans þar sem fulltrúar Landverndar afhentu skólanum Grænfánann. Að lokum söfnuðust allir saman fyrir framan aðalinngang skólans þar sem hægt var að fá grillaða hamborgara og gos ásamt því að blása sápukúlur, fá andlitsmálningu, fara vatnsleiki, ganga á stultum og margt fleira.
