Ţelamerkurskóli í Hörgárbyggđ

http://www.thelamork.is/

Ţelamerkurskóli er heildstćđur grunnskóli ađ Laugalandi í Hörgárdal. Nemendur skólans koma úr Arnarneshreppi og Hörgárbyggđ og á skólaárinu 2008-2009 eru nemendur 94. Skólinn leggur áherslu á útiveru og hreyfingu. Útiskóli hefur veriđ starfrćktur viđ skólann í átta ár og einnig eru í stundaskrám Ţelamerkurskóla fleiri hreyfistundir en viđmiđunarstundaskrá gerir ráđ fyrir.

Efni

Foreldrafélag

Tilgangur foreldrafélagsins er fyrst og fremst að tryggja sem best samband milli skólans og forráðamanna þeirra barna er þar stunda nám og stuðla að framkvæmd ýmissa mála í þágu skólans og nemenda hans. Tilgangi sínum hyggst félagið ná með því t.d. að halda fræðslufundi um uppeldismál, að veita aðstoð og/eða eiga frumkvæði að skipulagi og starfi. Að styðja menningarlíf innan skólans s.s tónlist, danslist, bókmenntir. 

Stjórn Foreldrafélags Þelamerkurskóla skipa: Eydís Þórarinsdóttir Stóra Dunhaga, Véronique Legros Hjalteyri, Ragnheiður Margrét Þorsteinsdóttir Syðri Bægisá, Jón Þór Benediktsson Ytri Bakka, Hafdís Hauksdóttir Skógarhlíð og Sigríður Kristín Sverrisdóttir Skriðu.

Allir foreldrar barna í Þelamerkurskóla eru félagar í foreldrafélagi skólans.

Upp aftur