Ţelamerkurskóli í Hörgársveit

http://www.thelamork.is/

Ţelamerkurskóli er heildstćđur grunnskóli ađ Laugalandi í Hörgárdal. Nemendur skólans koma úr Arnarneshreppi og Hörgárbyggđ og á skólaárinu 2008-2009 eru nemendur 94. Skólinn leggur áherslu á útiveru og hreyfingu. Útiskóli hefur veriđ starfrćktur viđ skólann í átta ár og einnig eru í stundaskrám Ţelamerkurskóla fleiri hreyfistundir en viđmiđunarstundaskrá gerir ráđ fyrir.

Efni

Grænfáninn

Þelamerkurskóli hefur lagt af stað í undirbúning að flöggun Grænfánans. Til þess að svo geti orðið þarf skólinn að stíga skrefin sjö sem sett hafa verið fram af umsjónarmönnum verkefnisins á landsvísu. Af þessum skrefum hefur skólinn stigið tvö þeirra; að stofna umhverfisnefnd skólans og að meta stöðu umhverfismála skólans.

Verkefni umhverfisnefndar á vorönn 2008 er að taka saman stöðu umhverfismála skólans og að gera tillögur að verkefnum skólans til að bæta stöðuna.

 Grænfánaverkefnið hófst  formlega hér í skólanum haustið 2009.

En hvað er Grænfáninn, skóli á grænni grein? Verkefnið er alþjóðlegt og er tilgangurinn að auka umhverfismennt og styrkja umhverfisstefnu í skólum. Það gerum við m.a. með því að flokka allt ruslið eftir okkur en í haust byrjuðum við á því að flokka rusl hér í skólanum.

Við höfum flokkunarstöðvar á 6 stöðum í skólanum og á hverri stöð eru 7 endurvinnsludallar (sjá mynd); hvítur pappír/dagblöð/tímarit, fernur og sléttur pappír, hart plast, lint plast, málmur, lífrænn úrgangur og óflokkað rusl. (Sjá hér)

Til þess að fá að flagga Grænfánanum þurfum við að stíga skrefin 7 sem eru sérstök verkefni fyrir okkur til að auka þekkingu okkar og vitund á umhverfismálum. Skrefin eru; að stofna umhverfisnefnd við skólann, mat á stöðu umhverfismála í skólanum, áætlun um aðgerðir og markmið, eftirlit og endurmat áætlunar, námsefnisgerð og verkefni, upplýsa aðra og fá aðra með, umhverfissáttmáli.

Við erum nú þegar búin setja saman umhverfisnefnd en hana skipa; Diðrik Kristjánsson nemandi í 6. bekk, Benedikt Sölvi Ingólfsson í 4. bekk, Bryndís Sóley Gunnarsdóttir nemandi í 9. bekk, Sverrir Haraldsson húsvörður, Sesselja Ingólfsdóttir starfsmaður mötuneytis, Sigríður Svavarsdóttir fulltrúi foreldra, Unnar Eiríksson aðstoðarskólastjóri og Sigríður Guðmundsdóttir iðjuþjálfi sem jafnframt er formaður nefndarinnar. Unnar Eiríksson er ritari.

Skjal sem sýnir að Þelamerkurskóli er skóli á grænni grein.

Fundargerð stýrihóps 14. október 2009

Fundargerð stýrihóps 30. nóvember 2010

Fundargerð stýrishóps 25. janúar 2011

Umhverfisskýrsla skólans

Fundargerð umhverfisnefndar 4. október 2010

 

Upp aftur

Vinstri hliđ

Leturstćrđir

Upp aftur

Upplýsingar

Heimilisfang: Laugalandi, 601 Akureyri

Kennitala sveitarfélags: 510101-3830

Símanúmer:

Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda:

460-1773 

Skólastjóri 460-1770
Aðst.skólastj. 460-1774
Kennarastofa 460-1772

Símanúmer bílstjóra

Viðbragðsáætlun vegna óveðurs eða ófærðar

Heimasíða Hörgársveitar

Heimasíða Tónlistarskóla Eyjafjarðar

Senda póst

Upp aftur