Efni
HHH
Þelamerkurskóli vinnur að verkefni sem að öllu jöfnu gengur undir nafninu HHH. En há-in þrjú standa fyrir hreyfingu, heilsu og hollustu.
Markmið HHH er í samvinnu við heimilin að stuðla að aukinni hreyfingu og bættu mataræði nemenda.
Grunn verkefnisins er að finna í rannsóknum sem sýna að offita barna og unglinga er að aukast víðast hvar í heiminum. Offita eykur verulega líkur á alvarlegum sjúkdómum og því er mikilvægt að sporna við þeirri þróun. Starfsmönnum skólans þótti við hæfi að nýta möguleikana sem umhverfi skólans gefur til að auka hreyfingu nemenda. Þessu til viðbótar var matseðill mötuneytis skólans látinn taka mið af markmiðum verkefnisins.
Framkvæmd verkefnisins miðast við að reynt er að hafa máltíðir mötuneytis sem fjölbreyttastar. Á hverjum degi er boðið er upp á grænmeti og ávexti. Einnig hefur hreyfistundum nemenda á stundatöflu verið fjölgað úr þremur í sex kennslustundir. Á hverjum föstudegi í lok skóladagsins eru hreyfistundir fyrir 1. - 6. bekk. Einn hópurinn fer í sund, annar nýtir sér íþróttasalinn.
Hópaskiptingu haustannar er að finna hér.
