Ţelamerkurskóli í Hörgársveit

http://www.thelamork.is/

Ţelamerkurskóli er heildstćđur grunnskóli ađ Laugalandi í Hörgárdal. Nemendur skólans koma úr Arnarneshreppi og Hörgárbyggđ og á skólaárinu 2008-2009 eru nemendur 94. Skólinn leggur áherslu á útiveru og hreyfingu. Útiskóli hefur veriđ starfrćktur viđ skólann í átta ár og einnig eru í stundaskrám Ţelamerkurskóla fleiri hreyfistundir en viđmiđunarstundaskrá gerir ráđ fyrir.

Efni

Iðjuþjálfun

Í Þelamerkurskóla erum við stolt af því að hjá okkur starfar fjölbreyttur hópur starfsfólks og þar á meðal er iðjuþjálfi í fullu starfi.

Í Þelamerkurskóla lítum við svo á að ef starfsmannahópurinn á að vera undir það búinn að bjóða nemendum sínum fjölbreytt og sveigjanlegt nám þá þurfi starfsmannahópurinn einnig að vera fjölbreyttur. Iðjuþjálfi skólans er hluti af sérkennsluteymi skólans. Starfssvið hans er að styðja bæði við einstaka nemendur, námshópa og einnig að styðja kennara í starfi með ráðgjöf og eftirfylgni í einstökum málum er varða bæði einstaklinga og námshópa.

Á ráðstefnu um lífsleikni sem haldin var í húsnæði menntavísindasviðs Háskóla Íslands í Stakkahlíð (áður Kennaraháskóli Íslands) þann 1. nóvember 2008 kynnti iðjuþjálfi skólans starf sitt og skólastjóri hélt stutt erindi um mikilvægi þess að grunnskólinn hefði á að skipa fjölbreyttum hópi starfsfólks. Þar kom fram að hugmyndafræði iðjuþjálfunarinnar og námskrá lífsleikninnar skarast að mörgu leyti.

Hér er erindi skólastjóra. Og hér er erindi iðjuþjálfans, Sigríðar Guðmundsdóttur.

Upp aftur

Vinstri hliđ

Leturstćrđir

Upp aftur

Upplýsingar

Heimilisfang: Laugalandi, 601 Akureyri

Kennitala sveitarfélags: 510101-3830

Símanúmer:

Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda:

460-1773 

Skólastjóri 460-1770
Aðst.skólastj. 460-1774
Kennarastofa 460-1772

Símanúmer bílstjóra

Viðbragðsáætlun vegna óveðurs eða ófærðar

Heimasíða Hörgársveitar

Heimasíða Tónlistarskóla Eyjafjarðar

Senda póst

Upp aftur