Efni
Mötuneytið
Við Þelamerkurskóla er starfrækt mötuneyti. Þar fá nemendur morgunverð eftir að fyrstu kennslustund lýkur, ávaxtahressingu kl. 10:45 og hádegisverð kl. 12:30.
Mikil áhersla lögð á að nemendur fái hollan mat í skólanum. Ævinlega er boðið uppá grænmeti með hádegisverðinum. Til viðbótar er ávöxtur í eftirrétt.
Matseðill mánaðarins fer heim með nemendum um hver mánaðamót. Hann er settur saman af matráði skólans og stýrihópi HHH-verkefnisins.
Fæðiskostnaður er 450 kr. fyrir hvern dag. Innheimtuseðlar eru sendir út í nóvember, mars og júní. Hægt er að semja við fjárhaldara um annað fyrirkomulag á greiðslum. Einungis er greitt fyrir þann dagafjölda sem börnin eru í skólanum og er þá stuðst við bekkjarskrár. Endanlegt uppgjör mötuneytisgjalda er sent til foreldra eftir skólalok á vorin.
Reiknishald vegna Þelamerkurskóla er á skrifstofu Hörgársveitar í Þelamerkurskóla og er Guðmundur Sigvaldason fjárhaldari skólans. Fulltrúi hans er Ásgeir Már Hauksson.
Fjárhaldari skólans: Guðmundur Sigvaldason sveitastjóri s- 461-5474 og 860-5474
Netfang: horgarsveit@horgarsveit.is
Bókari skólans: Ásgeir Már Hauksson fulltrúi s-461-5477 og 862-6821 Netfang: asgeir@horgarsveit.is