Ţelamerkurskóli í Hörgárbyggđ

http://www.thelamork.is/

Ţelamerkurskóli er heildstćđur grunnskóli ađ Laugalandi í Hörgárdal. Nemendur skólans koma úr Arnarneshreppi og Hörgárbyggđ og á skólaárinu 2008-2009 eru nemendur 94. Skólinn leggur áherslu á útiveru og hreyfingu. Útiskóli hefur veriđ starfrćktur viđ skólann í átta ár og einnig eru í stundaskrám Ţelamerkurskóla fleiri hreyfistundir en viđmiđunarstundaskrá gerir ráđ fyrir.

Efni

Námsmöppur

Á skólaárinu 2007-2008 er unnið að því að auka enn frekar en áður ábyrgð nemenda á eigin námi. Eitt verkfæranna sem er ætlað það hlutverk eru svokallaðar námsmöppur.

Kveikjan að þessu verkefni var aukin áhersla skólans á einstaklingsmiðað nám. Með námsmöppunni vill skólinn fá nemendur til að taka aukna ábyrgð á eigin námi og auka fjölbreytni í námsmati. Námsmöppurnar eru aðallega notaðar í 5. og 6. bekk og elsta námshópi.

Markmið námsmöppunar

  • að gera nemendur ábyrgari fyrir eigin námi
  • að nemendur geri sér grein fyrir styrkleikum og veikleikum sínum og vinni með þá á uppbyggilegan hátt og geri framfarir í námi sýnilegri
  • að fá nemendur til að setja sér markmið
  • að nemendur, foreldrar/forráðamenn og kennarar geri sér grein fyrir hvaða aðferðir henti hverjum og einum best til náms

Hver nemandi á sína eigin persónulegu möppu. Henni er skipt niður í fimm kafla og fjallar fyrsti kaflinn um nemandann sjálfan þar sem hann ígrundar sjálfan sig og jafningjana. Einnig er fjallað um þá þætti í umhverfinu sem móta hvern einstakling. Í öðrum kafla setja nemendur sér markmið, bæði námsleg og félagsleg. Bæði nemendur og foreldrar leggja mat á námshætti nemenda. Í þriðja kafla á hver bókleg námsgrein sér undirkafla. Þar safna nemendur verkefnum, prófum, könnunum og öðru sem kennarar leggja upp með. Fjórði kafli heitir Uppáhaldið mitt og er ætlaður fyrir verkefni sem nemendur eru stoltastir af á hverri önn. Í lok annar fá nemendur einkunn fyrir námsmöppuna.

Stefnt er að því að námsmappan verði fastur hluti af náminu og auki ábyrgð nemenda á eigin námi.

Stýrihóp þessa verkefnis mynda: Anna Rósa Friðriksdóttir, Þorbjörg Dóra Gunnarsdóttir og Halla Björk Þorláksdóttir.

Upp aftur