Efni
Nefndir og ráð
Í námskrá skólans er lögð áhersla á það að nemendur taki þátt í að móta eigið starfsumhverfi, félagslíf og menningarlíf. Nemendaráð starfar við skólann og er skipað fjórum nemendum úr 8. - 10. bekk. Helstu verkefni nemendaráðs eru á vettvangi félagsmála og er skipulag félagsstarfsins á elsta stiginu að mestu í þeirra höndum. Lögð verður áhersla á frumkvæði og markviss vinnubrögð, að fundir verði markvissir og skilvirkir.
Eftirtaldir nemendur skipa nemendaráð sem kosið er til eins árs í senn:
8. bekkur...........................
9. bekkur...........................
10. bekkur........................
10. bekkur........................ formaður nemendaráðs
Í vallarráði skólans er einn fulltrúi úr hverjum bekk.
1. b.
2. b.
3. b.
4. b.
5. b.
6. b.
7. b.
8. b.
9. b.
10. b.
Samkvæmt nýjum grunnskólalögum hefur foreldra- og kennararáð verið lagt niður en í stað þess skal kosið Skólaráð við alla skóla. Í grunnskólalögunum segir m.a.
"Við grunnskóla skal starfa skólaráð sem er samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags um skólahald. Skólaráð tekur þátt í stefnumörkun fyrir skólann og mótun sérkenna hans. Skólaráð fjallar um skólanámskrá skólans, árlega starfsáætlun, rekstraráætlun og aðrar áætlanir um skólastarfið. Skólaráð skal fá til umsagnar áætlanir um fyrirhugaðar meiri háttar breytingar á skólahaldi og starfsemi skóla áður en endanleg ákvörðun um þær er tekin. Skólaráð fylgist almennt með öryggi, aðbúnaði og almennri velferð nemenda. Skólanefnd, sbr. 6. gr., getur með samþykki sveitarstjórnar falið skólaráðum einstakra skóla ákveðin verkefni þessu til viðbótar.
Skólaráð skal skipað níu einstaklingum til tveggja ára í senn, tveimur fulltrúum kennara ásamt einum fulltrúa annars starfsfólks í viðkomandi skóla, tveimur fulltrúum nemenda og tveimur fulltrúum foreldra, auk skólastjóra sem stýrir starfi skólaráðs og ber ábyrgð á stofnun þess. Skólaráð velur að auki einn fulltrúa grenndarsamfélags til að sitja í ráðinu eða viðbótarfulltrúa úr hópi foreldra. Auk þess skal skólastjóri boða til sameiginlegs fundar skólaráðs og stjórnar nemendafélags að lágmarki einu sinni á ári."
Tilgangur foreldrafélagsins er fyrst og fremst það að tryggja sem best samband milli skólans og forráðamanna þeirra barna er þar stunda nám og stuðla að framkvæmd ýmissa mála í þágu skólans og nemenda hans. Tilgangi sínum hyggst félagið ná með því t.d. að halda fræðslufundi um uppeldismál, að veita aðstoð og/eða eiga frumkvæði að skipulagi og starfi. Að styðja menningarlíf innan skólans s.s tónlist, danslist, bókmenntir og fl.
Formaður foreldrafélagsins er Ragnheiður Margrét Þorsteinsdóttir Syðri-Bægisá sími:461-2441
Aðrir í stjórn eru: Veronique, Jón Þór, Eydís Elva, Hafdís, Sigríður Kristín.
Allir foreldrar barna í Þelamerkurskóla eru félagar í foreldrafélagi Þelamerkurskóla. Stjórn félagsins vonast til að eiga gott samstarf við áhugasama foreldra og starfsmenn skólans á komandi vetri.
Fræðslunefnd Þelamerkurskóla
Eftirtaldir aðilar eru fulltrúar í fræðslunefnd skólans : Axel Grettisson, formaður, Garðar Lárusson, Líney Diðriksdóttir, Stefanía Steinsdóttir og Sunna Hlín Jóhannesdóttir.Fundarmenn voru ofantaldir fulltrúar í nefndinni og auk þeirra:Hugrún Ósk Hermannsdóttir, leikskólastjóri Álfasteini, Ingileif Ástvaldsdóttir, skólastjóri Þelamerkurskóla, Helga Jónsdóttir, fulltrúi foreldra leikskólabarna, Jónína Sverrisdóttir, fulltrúi grunnskólakennara, Sigríður Gréta Þorsteinsdóttir, fulltrúi starfsfólks leikskóla ogGuðmundur Sigvaldason, sveitarstjóri Hörgársveitar.
