Efni
Virkni og þátttaka
Frá skólaárinu 2009-2010 hefur Þelamerkurskóli unnið að því að auka nemendalýðræði í skólanum. Haustið 2010 fékk hann styrk úr Sprotasjóði, þróunarsjóði grunnskóla til að halda áfram með það verkefni sem kallað er Virkni og þátttaka.
Markmið Virkni og þátttöku er að auka virkni, þátttöku og ábyrgð nemenda í starfi skólans. Verkefninu tilheyrir að búinn var til farvegur fyrir uppbyggilega umræðu um starfið sem á að verða til þess að nemendur sjái að umræða getur leitt til jákvæðra breytinga á umhverfi þeirra og aðstæðum.
Í skólanum er litið svo á að bekkjarfundir hvers námshóps séu grasrót skólasamfélagsins og þar fari fram umræða sem eigi að skila sér í formleg ráð og nefndir þar sem nemendur eiga fulltrúa: mötuneytisráði, vallaráði, skólaráði, nemendaráði, stýrihópi Grænfánaverkefnisins og Heilsueflandi skóla.
Í Brot af því besta á vordögum 2011 gerðu skólastjórnendur upp starf vetrarins og hér er hægt að skoða kynningu þeirra.
Verkefninu tilheyrir einnig að nemendur geti í auknum mæli haft áhrif á eigið nám. Og eru það áhersla skólaársins 2011-2012.

