Ţelamerkurskóli í Hörgársveit

http://www.thelamork.is/

Ţelamerkurskóli er heildstćđur grunnskóli ađ Laugalandi í Hörgárdal. Nemendur skólans koma úr Arnarneshreppi og Hörgárbyggđ og á skólaárinu 2008-2009 eru nemendur 94. Skólinn leggur áherslu á útiveru og hreyfingu. Útiskóli hefur veriđ starfrćktur viđ skólann í átta ár og einnig eru í stundaskrám Ţelamerkurskóla fleiri hreyfistundir en viđmiđunarstundaskrá gerir ráđ fyrir.

Efni

Félagsstörf nemenda

Félagslíf nemenda  nemendaráð, sjoppuráð, mötuneytisráð, íþróttaráð og umhverfisnefnd 

Í námskrá skólans er lögð áhersla á það að nemendur taki þátt í að móta eigið starfsumhverfi, félagslíf og menningarlíf. Nemendaráð starfar við skólann og er skipað fjórum nemendum úr 8.  - 10. bekk. Helstu verkefni nemendaráðs eru á vettvangi félagsmála og er skipulag félagsstarfsins á elsta stiginu að mestu í þeirra höndum.  Lögð verður áhersla á frumkvæði og markviss vinnubrögð, að fundir verði markvissir og skilvirkir.

Eftirtaldir nemendur skipa nemendaráð sem kosið er til eins árs í senn:

8. bekkur Matthías Már

9. bekkur..........................Katrín Birna         

10. bekkur........................Brák

10. bekkur........................Tryggvi Þór

 

Verslunarstjórar Dúddabúðar eru:  Sindri Snær J.,Unnar og Eva Margrét.

Verslunarstjórar sjá um innkaup fyrir sjoppuna og halda utan um rekstur hennar.

Innkaup eru gerð í samráði við umsjónarmann félagslífs. Einnig er það á ábyrgð sjoppustjóra að skipuleggja vinnutöflu fyrir sjoppuna.

Umsjónarkennarar  bera ábyrgð á félagslífi sinna bekkja og koma til aðstoðar-skólastjóra sinni áætlun um félagstarf fyrir síðasta kennarafund sem haldinn er í hverjum mánuði.

Umsjónarmaður félagslífs 8. - 10. bekkjar er Logi Ásbjörnsson kennari

Logi vinnur ásamt aðstoðarskólastjóra, nemendaráði og umsjónarkennurum að áætlunum um félagsstarf hvers mánaðar. Lögð er áhersla á það að bekkir vandi undirbúning skemmtana á vegum skólans.

Fundir með nemendaráði eru haldnir reglulega. Um það sem viðkemur félagsstarfi fundar nemendaráð með umsjónarmanni félagaslífs í samráði við aðstoðarskólastjóra.

Anna Rósa Friðriksdóttir umsjónarkennari 10. bekkjar er umsjónarmaður fjáröflunar og er ábyrg fyrir varðveislu ferðasjóðsins. Anna Rósa fer með skipulag fjáröflunar og vinnur í samráði við nemendur og foreldra.

Önnur ráð:

Mötuneytisráð:

Í því eiga sæti:Benedikt 7. bekk, Brynjar Logi 9. bekk.

Einn nemandi úr hverjum námshópi.Verkefni: Mötuneytisráð er ráðgefandi fyrir skólastjóra og matráð í málefnum mötuneytisins.Mötuneytisráð fundar einu sinni í mánuði með skólastjóra og matráði. Á fundinum er farið yfir matseðil liðins mánaðar og tillögu matráðs að matseðli næsta mánaðar. Þar eru einnig tekin til umfjöllunar önnur mál sem snerta málefni mötuneytisins.  

Vallaráð:

Í því eiga sæti: Bergur Þór 7. bekk ,Eva Margrét 9. bekk.

Einn nemandi úr hverjum námshópi.Verkefni: Vallaráð er ráðgefandi fyrir aðstoðarskólastjóra og húsvörð í málefnum leikvallar, sparkvallar og körfuboltavallar. Vallaráð fundar a.m.k. þrisvar á skólaárinu. Í upphafi skólaársins til að skipta tímanum á sparkvellinum á milli námshópa, um miðjan vetur til að fara yfir skiptinguna og í lok skólaárs til að skrá hvort þörf er á breytingum fyrir næsta skólaár. Vallaráð er einnig kallað saman ef leysa þarf mál eða ræða málefni sem snerta vellina á lóð skólans.  

Íþróttaráð:

Í því eiga sæti: Oddrún 8. bekk og Silva Rún 9. bekk

Einn nemandi úr 8. bekk, einn úr 9. bekk og einn úr 10. bekk. Verkefni:

Íþróttaráð er kennurum og stjórnendum til ráðgjafar og aðstoðar við skipulag og framkvæmd á íþróttaviðburðum og útivistardögum á vegum skólans. Það fundar eftir þörfum, tímanlega fyrir íþróttaviðburði skólans. Íþróttakennarar skólans og stjórnendur eru umsjónarmenn íþróttaráðs.

Umhverfisnefnd:

Í henni eiga sæti: Anton 8. bekk, Unnar 9. bekk, 

 

Athugið:

Klúbbar og SAM-skólaböll eru eingöngu ætluð nemendum Þelamerkurskóla.

Nemendur geta fengið leyfi hjá umsjónarmanni (þ.e. kennari sem er á vakt skv. dagskrá ÞMS)  til að bjóða vini með sér á ball eða opið hús sem haldið er í skólanum.

Þeir gestir sem ekki hafa fengið leyfi hjá umsjónarmanni skemmtunarinnar fá ekki að fara inn á skemmtunina.

 

Félagslíf 1. - 4. bekkjar:

Félagslíf yngsta stigs byggist mikið á þátttöku foreldra og stendur og fellur með því hvernig til tekst að virkja þá.  Ein skipulögð dagskrá á vegum skólans verður í hverjum mánuði. Nemendum þessa stigs er einu sinni til tvisvar á skólaárinu boðið upp á leikrit frá farandleikhúsum auk ýmissa íþróttaviðburða. Einnig mun Solveig Lára Guðmundsdóttir  sóknarprestur verða með æskulýðsstarf hjá þessum bekkjum á fimmtudögum í vetur.

 

Félagslíf 5. - 7. bekkjar:

Ein skipulögð dagskrá á mánuði verður hjá þessum bekkjum í vetur.

Sólveig Lára Guðmundsdóttir sóknarprestur verður einnig með æskulýðsstarf á miðstiginu.

Félagslíf miðstigsins kallar á þátttöku foreldra í samvinnu við umsjónarkennara.


Félagslíf 8. - 10. bekkjar:

Í vetur er skipulagður einn viðburður í mánuði. Þann mánuð sem SAM-skólaball er skipulagt er ekki skólaball nema eitthvað sérstakt komi til.

Skólaböll og SAM-skólaböll og annað félagsstarf verður á föstudögum og stendur frá 20:00 -22:30. Klúbbar og opin hús eru þó frá kl. 20:00 - 22:00

Umræðukvöld Solveigar Láru sóknarprests verða einu sinni í mánuði hjá 9. og 10. bekk.

Á umræðukvöldunum er rætt um lífið og tilveruna en mest áhersla lögð á forvarnarstarf.

 

SAM-skólasamstarf.

Þann 23 september hittast nemendur 8. - 10. bekkjar í Valsárskóla. Þar verður boðið upp á fróðleik og skemmtun. Gist verður í Valsárskóla og heimferð daginn eftir.

Fimmtudaginn 27. október verður SAM-skólaíþróttadagur 5. 7. bekkjar í Þelamerkurskóla.

Þann 11.  nóvember verður SAM-skólaball 8. - 10. bekkjar á Stórutjarnarskóla.

Næsta SAM-skólaball verður í Þelamerkurskóla þriðjudaginn 17. janúar.

Síðasta SAM-skólaball vetrarins verður í Grenivíkurskóla mánudaginn 30. apríl.

 

Annað samstarf verður einnig, t.d. er verið að tala um nemendaheimsóknir og fl.

SAM-skólaviðburðir eru eingöngu ætlaðir nemendum SAM-skólanna.

Upp aftur

Vinstri hliđ

Leturstćrđir

Upp aftur

Upplýsingar

Heimilisfang: Laugalandi, 601 Akureyri

Kennitala sveitarfélags: 510101-3830

Símanúmer:

Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda:

460-1773 

Skólastjóri 460-1770
Aðst.skólastj. 460-1774
Kennarastofa 460-1772

Símanúmer bílstjóra

Viðbragðsáætlun vegna óveðurs eða ófærðar

Heimasíða Hörgársveitar

Heimasíða Tónlistarskóla Eyjafjarðar

Senda póst

Upp aftur