Ţelamerkurskóli í Hörgárbyggđ

http://www.thelamork.is/

Ţelamerkurskóli er heildstćđur grunnskóli ađ Laugalandi í Hörgárdal. Nemendur skólans koma úr Arnarneshreppi og Hörgárbyggđ og á skólaárinu 2008-2009 eru nemendur 94. Skólinn leggur áherslu á útiveru og hreyfingu. Útiskóli hefur veriđ starfrćktur viđ skólann í átta ár og einnig eru í stundaskrám Ţelamerkurskóla fleiri hreyfistundir en viđmiđunarstundaskrá gerir ráđ fyrir.

Efni

Olweus gegn einelti

haus_120Á haustönn 2008 byrjaði Þelamerkurskóli innleiðingu áætlun Olweusar gegn einelti. Fyrsti kynningarfundur fyrir starfsfólk fer fram 13. október og kynning fyrir foreldra er áætluð 27. október.

Áætlunin felur í sér að allir sem að skólastarfinu koma geti verið samtaka í að vinna gegn einelti. Það er gert með fræðslu og umræðum þar sem starfsfólk, nemendur og foreldrar læra að koma auga á einkenni eineltis, hvernig eigi að bregðast við því og síðast en ekki síðst að miða starfið við að einelti fái ekki þrifist í starfsemi skólans.

Minnislista yfir áætlunina er hægt að skoða með því að smella hér.

Á heimasíðu verkefnisins á landsvísu er að finna upplýsingar um verkefnið http://olweus.is Einnig fá allir foreldar afhentan upplýsingabækling um verkefnið og áherslur þess.

Fyrsti kynningar fundur áætlunarinnar var haldinn með starfsfólki mánudaginn 13. október. Þá var farið yfir helstu þætti áætlunarinnar og skipulag innleiðingarinnar við skólann. Hér er hægt að skoða glærurnar sem notaðar voru á fundinum.

Fundaáætlun starfsfólks veturinn 2009-2010

Upp aftur