Ţelamerkurskóli í Hörgársveit

http://www.thelamork.is/

Ţelamerkurskóli er heildstćđur grunnskóli ađ Laugalandi í Hörgárdal. Nemendur skólans koma úr Arnarneshreppi og Hörgárbyggđ og á skólaárinu 2008-2009 eru nemendur 94. Skólinn leggur áherslu á útiveru og hreyfingu. Útiskóli hefur veriđ starfrćktur viđ skólann í átta ár og einnig eru í stundaskrám Ţelamerkurskóla fleiri hreyfistundir en viđmiđunarstundaskrá gerir ráđ fyrir.

Efni

Þelamerkurskóli telst til fámennra skóla en í þeim skólum hefur skipulagi kennslu verið þannig háttað að árgöngum er kennt saman í hópum sökum fámennis í hverjum árgangi. Margir fjölmennir skólar hafa lika valið samkennslu árganga sem leið til koma betur en áður til móts við þarfir hvers nemanda.

 

Í Þelamerkurskóla er samkennsla árganga komin til vegna fámennis og nýta starfsmenn kosti skipulagsins einnig til að laga námið að þörfum nemendanna. Litið er svo á að með samkennslunni losni kennarar úr viðjum hefðbundinnar bekkjarkennslu þar sem lengi hefur viðgengist að allir nemendur árgangsins þurfi að vera á sama stað á sama tíma í námi sínu.

Við skipulag kennslu er haft í huga að flest börn eru á hverjum tíma mislangt komin á mismunandi sviðum þroskans. Til dæmis getur barn verið komið lengra í málþroska en skemmra í félagslegri færni en bekkjarfélagarnir. Slíkur þroskamunur er auðveldari viðfangs í aldursblönduðum hópum en aldursbundnum. Í samkennsluhópum skpast aðstæður þar sem hægt er að viðurkenna fjölbreytta hegðun og börn sem eru af einhverjum ástæðum skemmra komin á einhverju sviði þroskans en flestir jafnaldrarnir getur átt mun auðveldara uppdráttar innan um sér yngri samnemendur og það getur styrkt námsáhuga þess og sjálfsmynd.

Upp aftur

Vinstri hliđ

Leturstćrđir

Upp aftur

Upplýsingar

Heimilisfang: Laugalandi, 601 Akureyri

Kennitala sveitarfélags: 510101-3830

Símanúmer:

Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda:

460-1773 

Skólastjóri 460-1770
Aðst.skólastj. 460-1774
Kennarastofa 460-1772

Símanúmer bílstjóra

Viðbragðsáætlun vegna óveðurs eða ófærðar

Heimasíða Hörgársveitar

Heimasíða Tónlistarskóla Eyjafjarðar

Senda póst

Upp aftur